Braust inn og fór á Facebook Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. júní 2014 14:42
Tuttugu og tveggja ára karlmaður var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kveikt eld inni í atvinnuhúsnæði á Ísafirði með þeim afleiðingum að miklar bruna- og reykskemmdir urðu á húsnæðinu. Manninum er gert að greiða allan sakarkostnað og málsvarnarlaun verjanda síns, tæplega 1,2 milljónir króna. Tölvunotkun kom upp um hann Maðurinn gaf sig ekki fram til lögreglu en leiddi rannsókn tölvurannsóknardeildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu í ljós að maðurinn hafði notað tölvu í húsnæðinu til að fara inn á Facebook síðu sína og heimabanka og komst þannig upp um manninn. Hann sagðist ekki hafa gefið sig fram vegna hræðslu og taldi líklegt að hann hafi verið valdur af brunanum þar sem hann mundi eftir að hafa verið inni í húsnæði. Hann sagði verknað sinn hafa valdið honum mikilli vanlíðan og íhugaði hann sjálfsvíg vegna þess. Fyrir dómi kvaðst hann ekki muna eftir eldi en mundi að hafa kastað eldspýtu í fötuna. Þá sagðist hann ekki vita af hverju hann gerði þetta og sagðist ekki hafa hugleitt hvað gæti gerst. Reiður fyrrum yfirmanni sínum Maðurinn kvaðst hafa farið nokkuð drukkinn inn á fyrrum vinnustað sinn aðfararnótt sunnudagsins 24. júní 2012 og sagðist hafa rótað þar í hirslum og skúffum. Hann fann þar eldspýtu, kveikti á henni kastaði henni í ruslafötu sem þar var við skúffuskáp. Hjá lögreglu sagðist hann hafa verið reiður út í fyrrverandi yfirmann sinn sem sagði honum upp störfum skömmu áður og sagði hann það ástæðu þess að hann framdi verknaðinn. Hann kannaðist þó ekki við það í framburði sínum fyrir dómi né að hafa orðið var við það að kviknað hefði í húsnæðinu. Framburður hans var metinn ótrúverðugur og var því dæmdur, eins og fyrr segir, í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Fleiri fréttir Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Sjá meira