Öryggisbúnaði reiðhjóla verulega ábótavant Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. júní 2014 22:10 Vísir/Heiða
Í árlegri könnun sem Brautin – bindindisfélag ökumanna framkvæmdi nýlega kom í ljós að einungis 21 prósent nýrra reiðhjóla í verslunum á höfuðborgarsvæðinu uppfylltu reglugerð 057/1994 um gerð og búnað reiðhjóla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Munaði þar mestu um að bjöllu vantaði á 72 prósent reiðhjóla sem skoðuð voru. Þá vantaði keðjuhlíf á allmörg reiðhjól (27 prósent) og glitmerki á önnur. Fimm prósent reiðhjóla sem skoðuð voru skorti frambremsu. Í þessari könnun hefur lás verið tekinn út úr búnaðinum en einungis 9 prósent reiðhjóla eru seld með lás. Fjölmargar gerðir lása eru til og því ekki í hag neytenda að láta hann fylgja með hjólum. Nokkuð mismunandi var eftir reiðhjólaverslunum hvernig búnaði reiðhjóla var háttað. Þannig voru 80 prósent reiðhjóla í reiðhjólaversluninni Berlin lögleg og 69 prósent reiðhjóla í Erninum. Aftur á móti fannst ekkert löglegt hjól í BYKO, Kríu eða TRI. Hlutfallið í öðrum verslunum var á bilinu 7 – 30 prósent.Reiðhjólasalar segjast ekki kannast við reglugerðinaÍ samtali við nokkra reiðhjólasala kom fram að þeir telja sig ekki bera ábyrgð á búnaði þeirra reiðhjóla sem þeir selja, það sé alfarið í höndum kaupenda. Þá könnuðust sumir einfaldlega ekki við reglugerðina og gátu þannig ekki upplýst kaupendur um þann búnað sem skal vera á reiðhjóli. „Það er óneitanlega nokkuð sérstakt að setja ábyrgðina yfir á kaupandann. Það er hætt við að neytendur létu í sér heyra ef þeir þyrftu sjálfir að ganga úr skugga um nauðsynlegan búnað á nýjum bíl sem þeir væru að kaupa. Að mínu mati er þörf á að reiðhjólamenn séu meðvitaðri um þann öryggisbúnað sem þarf að vera til staðar á reiðhjólum en jafnframt þarf að endurskoða reglugerðina, meðal annars með tilliti til eftirlits," segir Einar Guðmundsson, formaður Brautarinnar. Brautin telur augljóst að gildandi reglugerð sem fagnaði 20 ára starfsafmæli á þessu ári sé úrelt og brýn þörf sé á endurskoðun. Umfang hjólreiða á Íslandi hefur aukist verulega á tímabilinu sem og þær tegundir reiðhjóla sem eru í boði. „Núgildandi reglugerð tekur ekki til mismunandi notkunar reiðhjóla og gerir t.d. ekki greinarmun á hefðbundnum götuhjólum eða sérstökum keppnishjólum sem eingöngu eru notuð á lokuðum svæðum. Þá er brýnt að í reglugerðinni sé skilgreint með hvaða hætti skuli hafa eftirlit með búnaði reiðhjóla. Félagið telur eðlilegast að sú kvöð sé sett á seljendur reiðhjóla að þau hjól sem seld eru hafi nauðsynlegan öryggisbúnað í samræmi við reglugerðina,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira