Segir jafnréttisbaráttuna hafa skilað betri lífsgæðum Randver Kári Randversson skrifar 19. júní 2014 10:37 Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Vilhelm „
Jafnréttisbarátta kvenna hefur skilað okkur svo miklu, hún hefur skilað okkur öllum sem búum hér á Íslandi og í hinum vestræna heimi auknum lífsgæðum.Og hún hefur auðveldað öðrum minnihlutahópum að sækja sín mannréttindi, sem er alveg ofboðslega jákvætt líka,“ segir Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. Í dag er kvennadagurinn, en á þessum degi árið 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Af því tilefni ræddi Eygló Harðardóttir jafnréttismál í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Eygló segir að þótt ýmislegt hafi áunnist sé jafnréttisbaráttunni hvergi nærri lokið. „Það er fullt af verkefnum. Við erum ekki ennþá búin að útrýma kynbundnum launamun. Stórt skref í því er að losa okkur við þessi karla og kvenna störf, þannig að það verði bara til störf. “ Jafnframt telur Eygló að takast þurfi á við kynbundið ofbeldi og rannsaka þurfi hvers vegna karlar séu í meirihluta gerenda. Þetta sé fullkomlega óásættanlegt. Í því sambandi hefur hún áhyggjur af klámvæðingu í samfélaginu.„Mér finnst það til dæmis verulegt áhyggjuefni að sjá tölur sem segja það að ungir íslenskir drengir horfi meira á klám heldur en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum. Það er eitt af því sem jafnréttisbaráttan ætti að vera taka á.“ Hún segir jafnréttisbaráttuna snúast um fyrst og fremst um jafnrétti kynjanna. „Höfum það í huga að þetta snýst um jafnrétti kynjanna, ekki jafnrétti kvenna eða það að tryggja stöðu karla,“ segir Eygló. Eygló skrifar grein í Fréttablaðið í tilefni kvennadagsins.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira