Innlent

Samkomulag á Alþingi um þinglok

Höskuldur Kári Schram skrifar
Formenn allra flokka á Alþingi  náðu samkomulagi seint í gær um afgreiðslu þingmála og þinglok. Gert er ráð fyrir því að Alþingi ljúki störfum í síðasti lagi á laugardag.

Samkomlulagið gerir ráð fyrir því að Alþingi afgreiði meðal annars skuldafrumvörp ríkisstjórnarinnar og veiðigjaldafrumvarp sjávarútvegsráðherra. Tillaga utanríkisráðherra um að slíta aðildarviðræðum við Evrópusambandið verður ekki afgreidd samkvæmt þessu samkomulagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×