„Hjálpar til við að vinna úr áfallinu að vinna með myndirnar“ Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 14. maí 2014 11:49 „Svona einstakar eyrnamerktar gjafir gera okkur kleift að kaupa hluti og fjármagna endurbætur sem annars hefði jafnvel ekki verið hægt að gera,“ segir Ragnar Schram, framkvæmdastjóri Barnaþorpa SOS á Íslandi. „
Nafna mín, Þorbjörg Henný Eiríksdóttir, lést í bílslysi í október 2011 aðeins 17 ára gömul,“ segir Henný Eiríksdóttir en hún lét prenta myndir eftir Þorbjörgu Henný á gjafakort sem hún svo seldi. Ágóðann af sölu kortanna lét hún renna til SOS Barnaþorpa og notaði hún peninginn til að kaupa nýjar rólur handa leikskóla í Aboisso á Fílabeinsströndinni. Þorbjörg Henný var að aka fólksbíl á veginum um Fagradal á milli Reyðarfjarðar og Egilstaða þegar bíllinn skall framan á vöruflutningabifreið sem kom úr gagnstæðri átt. „Það var ísing á þessum bletti á veginum,“ segir Henný. „Mamma hennar sýndi mér bunka af teikningum eftir hana og þá fékk ég hugmyndina að því að búa þessi kort til. Hún var svo dugleg að teikna og mála og var búin að gera svo margar myndir. Elstu myndirnar eru frá því að hún var bara sjö ára,“ segir Henný.Saknar barnabarnsins sárt „Ég gerði þetta til minningar um hana, hún var svo mikill listamaður í sér. Við eigum fullt af myndum eftir hana, sérstaklega miðað við hvað hún var ung þegar hún lést. Margar hverjar eru mjög sérstakar.“Kort með myndum eftir Þorbjörgu Henný.Gjafakortin seldi fjölskyldan til vina og ættingja. Henný segir það hafa hjálpað til við að vinna úr áfallinu að vinna með myndirnar sem Þorbjörg Henný teiknaði. „Hún var sjálf svo góð og hún var svo mikil mamma í sér. Hún gekk til allra verka af festu og dugnaði og það var alveg sama hvað það var. Hvort það var að baka kökur eða syngja í kirkjunni sinni.“ Henný saknar barnabarnsins sárt en segir að það sé huggun harmi gegn að minningin um hana lifi að eilífu.Hjálpa til við að gera börnum lífið bærilegra „Svona eintakar eyrnamerktar gjafir gera okkur kleift að kaupa hluti og fjármagna endurbætur sem annars hefði jafnvel ekki verið hægt að gera,“ segir Ragnar Schram, framkvæmdastjóri Barnaþorpa SOS á Íslandi. „Það hjálpar okkur við að gera lífið hjá börnum bærilegra.Eins og með þessar rólur, það hefði kannski verið samþykkt á fjárhagsáætlun að kaupa þær en þegar það kemur auka framlag er það að sjálfsögðu þegið.“
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Fleiri fréttir Dælan anni ekki vatnsmagni Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Lögreglustöðinni verði lokað verði húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun „Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Flugið er líflína milli byggða Grænlands Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Sjá meira