Innlent

Gáfu 25 milljónir í þjarkasöfnunina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eiríkur Jónsson yfirlæknir, Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, Rafn Hilmarsson þvagfæraskurðlæknir og Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs.
Eiríkur Jónsson yfirlæknir, Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, Rafn Hilmarsson þvagfæraskurðlæknir og Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs.
Fyrirtækin Hagkaup og Bónus hafa gefið 25 milljónir króna í söfnun til kaupa á aðgerðarþjarka til skurðlækninga á Landspítala.

Framkvæmdastjórar fyrirtækjanna afhentu gjöfina formlega 14. maí 2014.

Aðgerðarþjarki (róbót) er í notkun á helstu sjúkrahúsum í nágrannalöndunum og nýtist til margvíslegra skurðaðgerða, sérstaklega við þvagfæraskurðlækningar sem og aðgerðir á grindarholslíffærum kvenna. Inngripið verður minna en með hefðbundinni aðferð, hægt að hlífa betur nærliggjandi líffærum og viðkvæmri starfsemi og stuðla þannig að skjótari bata.

Segja má að þjarkinn sé framlenging á fingrum skurðlæknisins þannig að allar hreyfingar hans verði nákvæmari. Sýn skurðlæknisins í aðgerðarþjarkanum er auk þess framúrskarandi góð.

Nú stendur yfir átak til þess að safna fé til að kaupa aðgerðaþjarka. Framlag Hagkaups og Bónuss og allra annarra sem hafa látið fé af hendi rakna er afar hjálplegur stuðningur við mikilvægar framfarir í skurðlækningum hér á landi.

Söfnun fyrir aðgerðarþjarka á vef Íslandsbanka stendur nú yfir.

„Við erum óendanlega þakklát fyrir það traust sem viðskiptavinir sýna okkur. Bónus var fyrr á árinu valið vinsælasta fyrirtæki landsins og Hagkaup lenti í 5 sæti á þeim lista,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss.

„Við teljum það samfélagslega skyldu okkar að styðja við verkefni sem öll þjóðin nýtur góðs af,“ segir Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups.

„Þetta er ákaflega höfðingleg gjöf sem gefur þessu mikilvæga samfélagsverkefni byr undir undir báða vængi. Þetta framlag kemur á tímapunkti þegar mikils þurfti við. Nú sér til lands en samtals eru 70-80 milljónir króna í húsi eða sjónmáli. Það eru um tveir þriðju þess sem við stefnum að í söfnuninni. Hafi Bónus og Hagkaup heila þökk fyrir,“ segir Eiríkur Jónsson yfirlæknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×