Verður Hrísey að sumarhúsabyggð? Jón Júlíus Karlsson skrifar 14. maí 2014 20:07
10 sjávarbyggðir eru í bráðum vanda samkvæmt úttekt byggðastofnunar. Óttast er að Hrísey breytist í sumarhúsabyggð leggist fiskvinnsla af á eyjunni. Sjávarútvegsráðherra ætlar að auka aflaheimildir til sjávarbyggða í vanda. Í minnisblaði sem Byggðastofnun vann fyrir sjávarútvegsráðuneytið er farið yfir stöðu sjávarbyggða á Íslandi. Nokkur umræða hefur verið um byggðarröskun í kjölfar ákvörðunar Vísis hf. sem áformar að hætta starfsemi sinni á Húsavík, Djúpavogi og Þingeyri sem er mikið reiðarslag fyrir tvo síðarnefndu byggðarlögin. Byggðastofnun skilgreinir 10 sjávarbyggðir í bráðum vanda og taka sex þeirra þátt í verkefninu „efling sjávarbyggða“. Fjórar sjávarbyggðir bætast á listann í ár. Byggðastofnun hafði 1.800 þorskígildistonn til ráðstöfunar á síðasta ári og leggur fram fjórðung hráefnis til vinnslu á móti þremur fjórðu hráefnis frá einkaaðilum. Ráðherra ætlar að auka aflaheimildir Byggðastofnunar um 1.100 tonn til viðbótar. „Það sem við höfum séð af verkefninu til þessa þá erum við vongóð um að þetta sé mun betri leið en núverandi byggðakvóti sem hefur verið lengi við lýði. Það háttar þannig til víða á Íslandi að á mörgum stöðum þar sem sjávarútvegur er grunnatvinnugreinin að þá er hún ekki aðeins grunnatvinnugreinin heldur sú eina,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra. Sérstakar áhyggjur eru af stöðunni í Hrísey. Hvammur hf., sem er langstærsti vinnuveitandinn í eynni, hefur sagt upp öllu starfsfólki við fiskvinnslu. Leggist vinnslan af er hætta á að Hrísey verði fyrst og fremst sumarhúsabyggð. „Ef við grípum ekki til einhverra aðgerða þá gætu þetta verið deyjandi byggðir sem geta þá breyst í sumarhúsabyggðir eða jafnvel yfirgefnar byggðir. Það viljum við ekki sjá og viljum tryggja að þessar byggðir eigi lífsgrundvöll. Hrísey er eitt þessara verkefna sem við horfum til.“
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í lýðháskóla Erlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Fleiri fréttir Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Sjá meira