Súkkulaðihúðaðar kaffibaunir frá Kaffitári innkallaðar Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 15. maí 2014 11:14 Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru haldnir ofnæmi fyrir soja afurðum eru beðnir um að farga henni eða skila til Kaffitárs. VÍSIR/PJETUR
Súkkulaðihúðar Expressó kaffibaunir framleiddar af Kaffitári voru innkallaðar í síðustu viku vegna þess að merkingar voru ekki í lagi. Varan er hjúpuð súkkulaði sem inniheldur lesitín sem unnið er úr sojabaunum. Sojabaunirnar eru þekktur ofnæmisvaldur. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja tilkynnti Matvælastofnun um málið. „Við höfum selt þessa vöru í sautján eða átján ár og það hefur aldrei neinn orðið veikur af henni,“ segir Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs. Fyrirtækið fékk tilkynningu frá heilbrigðiseftirliti Suðurnesja þann 8. maí þar sem tilkynnt var að merkingar væru í ólagi. Á umbúðunum kom ekki fram að varan innihéldi lesitín úr sojabaunum. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Aðalheiður bendir á að um tiltölulega nýjar breytingar sé að ræða varðandi merkingar á vörunni. „Það á að standa soja lesitín en hjá okkur stóð aðeins lesitín,“ segir Aðalheiður. Hún minnir á að umræddar kaffibaunir séu aðeins brot af þeim sem fyrirtækið hafi til sölu. Í kjölfarið hafi ranglega merkta varan verið innkölluð, merkt upp á nýtt og sé þegar komin í sölu. „Auðvitað vill maður hafa hlutina í lagi. Ef það á að standa soja lesitín þá gerum við það.“ Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru haldnir ofnæmi fyrir soja afurðum eru beðnir um að farga henni eða skila til Kaffitárs.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent „Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl“ Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Banksy opinberaður, enn einu sinni Erlent „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Fleiri fréttir Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más „Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl“ Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun „Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Flugið er líflína milli byggða Grænlands Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Faðir um brunann á Stuðlum, uppgjör í undirheimum og forsendubrestur Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Segir meinta vegtolla ekki á dagskrá Bein útsending: Ræðir glæpi gegn náttúrunni Sjá meira