Viðskipti innlent

11 klukkustundir liðu áður en netöryggissveitin var kölluð út

Stefán Árni Pálsson skrifar
Brotist var inn í kerfi Vodafone þann 30. nóvember 2013.
Brotist var inn í kerfi Vodafone þann 30. nóvember 2013. visir/pjetur
Fram kemur í skýrslu netöryggissveitar stofnunarinnar, CERT-ÍS, að 11 klukkustundir hafa liðið frá því að innbrotið á Vodafone þann 30. nóvember uppgötvaðist áður en starfsmenn CERT-ÍS voru kallaðir út.

Póst- og fjarskiptastofnun kemst að þeirri niðurstöðu á þriðjudag að þjónustu sem fjarskiptafyrirtækið Fjarskipta hf. (Vodafone) veitti með „Mínum síðum“ félagsins á heimasíðu sinni teljist til almennrar fjarskiptaþjónustu. 

Fram kemur í skýrslu CERT-ÍS að í umræddu atviki hafi í fyrsta sinn reynt á skipulag, þekkingu og reynslu netöryggissveitarinnar við að meðhöndla stór  öryggisatvik undir tímapressu.

Strax og sveitin hafi verið orðin meðvituð um innbrotið voru viðeigandi verkferlar virkjaðir  og unnið eftir þeim í gegnum allt atvikið. Á heildina litið virkuðu verkferlar netöryggissveitarinnar að mestu í  samræmi við fyrirætlanir.

Fjölmörg atriði eiga að hafa komið í ljós sem lagfæra þurfti; í starfi sveitarinnar, lagaumhverfinu  og í samskiptum við ytri aðila.

Skýrsluhöfundar telja að nauðsynlegt sé að gera viðeigandi breytingar á fyrirkomulagi tilkynninga til sveitarinnar og starfstíma hennar svo stytta megi verulega þennan tíma. 

„Þegar atvikið er rýnt er ljóst að bæta þarf öflun og miðlun upplýsinga um yfirstandandi atvik þar sem miðlun  slíkra upplýsinga innan þjónustuhópsins er ein helsta og áhrifamesta aðgerðin sem sveitin hefur á sínu valdi. Án  slíkra upplýsinga eru aðrir aðilar í mikilli óvissu um öryggi þeirra eigin kerfa og verða því óhjákvæmilega að eyða  orku í mögulegan óþarfa viðbúnað,“ segir í skýrslunni.

Helsti tilgangur og eðli netöryggissveita á borð við CERT-ÍS sé að styðja þjónustuhópinn við að takast á við ógnir  og öryggisatvik og því er mikilvægt að draga lærdóm af slíkum atvikum, bæði því sem vel gekk og það sem má bæta. 

Skýrslan í heild sinni er birt á vef CERT-ÍS á eftirfarandi vefslóð.


Tengdar fréttir

Reyndi að brjótast inn í tölvukerfi fleiri fyrirtækja

Tölvuþrjóturinn sem braust inn hjá Vodafone aðfaranótt laugardags reyndi fyrst að brjótast inn hjá öðrum íslenskum fyrirtækjum. Getum aldrei verið fullkomlega örugg segir sérfræðingur. Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru að verða meira meðvituð um hættuna af netárásum.

Vodafonelekinn: Hefur djúpstæð áhrif á sálarheill fólks

"Þetta mun mögulega kom til með að hafa djúpstæðar afleiðingar á líf og líðan nokkurra einstaklinga," segir sálfræðingur um árásina á Vodafone. Þúsundir persónulegra skilaboða eru nú í dreifingu á meðal manna og getur slíkt haft alvarlegar afleiðingar fyrir sálarheill fólks.

Til þess eru vítin að varast þau

Bréf Vodafone tóku snarpa niðurdýfu í Kauphöllinni eftir innbrot tölvuþrjóts. TrendMicro segir kostnað fylgja slíkum áföllum.

Vodafone lekinn olli vinslitum

Fyrstu dagana fór ég ekki út úr húsi, segir maður sem fór illa út úr gagnastuldi frá Vodafone. Rætt verður við manninn í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Fáir hafa flutt sig frá Vodafone

Innan við eitt prósent GSM-viðskiptavina Vodafone hafa fært sig annað og enginn af tíu stærstu viðskiptavinum fyrirtækisins hefur sagt upp viðskiptum sínum í kjölfar tölvuárásar á heimasíðu félagsins.

Þúsundir lykilorða komin á netið

30 þúsund kennitölur, ásamt símanúmeri og netföngum, eru meðal þeirra upplýsinga sem láku á netið í morgun. Hanna Birna Kristjánsdóttir segir ráðuneytið vinna í málinu með viðeigandi undirstofnunum.

Lögbrot hjá Vodafone

Lögfræðingar segja að gögn sem geymd eru allt að fjögur ár aftur í tímann brjóti líklegast gegn lögum.

Leki sem snertir tugþúsundir einstaklinga

Gengi hlutabréfa Vodafone hríðféll í Kauphöllinni í dag og hafa fjölmargir viðskiptavinir sagt skilið við fyrirtækið. Eitt af fórnarlömbum lekans mikla um helgina ítrekar að prívat gögn séu prívat, þó að þeim sé stolið. Innanríkisráðherra fordæmir tölvuárásina.

Vodafone veitti upplýsingar um fimm ára gömul símtöl

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk upplýsingar frá Vodafone um símtöl vegna rannsóknar á kynferðisbrotamáli gegn lögreglumanni á höfuðborgarsvæðinu. Vodafone er aðeins heimilt að geyma upplýsingarnar í sex mánuði.

Gengi Vodafone stóð í stað

Áhrif innbrotsins á vef Vodafone og gagnalekans, voru ekki mikil á hlutabréfaverð félagsins í Kauphöllinni í dag.

Mörg fyrirtæki með ódulkóðuð lykilorð

Á síðu Pírata er bent á fimm íslenskar vefsíður sem ekki verja notendur sína með því að dulkóða lykilorð þeirra. Útbreitt vandamál, segir þingmaður Pírata. Rannsókn lögreglu á innbroti á vef Vodafone aðfaranótt laugardags á frumstigi.

Þúsund íslenskar heimasíður hakkaðar í ár

Samkvæmt hakkarasíðunni Zone-h.org hafa hátt í þúsund heppnaðra netárása verið gerðar á íslenskar vefsíður á árinu. Þingmaður Pírata segir árásir á íslenskar vefsíður hlaupa á milljónum.

Ekki leitað til erlendra lögregluembætta

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur enn að rannsókn á netárás á vefsíðu Vodafone í desamber í fyrra þar sem tölvuþrjótum tókst að komast yfir persónulegar upplýsingar frá viðskiptavinum fyrirtækisins.

Forstjóri Vodafone: Fyrirtækið rúið trausti

Fyrirtækið er rúið trausti, segir forstjóri Vodafone. Hann segir mistök hafa valdið því að viðkvæm gögn um viðskiptavini Vodafone hafi verið geymd lengur en lög geri ráð fyrir.

Síminn og Nova hafa eytt gögnum

Fjarskiptafyrirtæki hafa farið vandlega yfir kerfi sín og öryggisáætlanir eftir að tölvuhakkari réðst á vefsíðu Vodafone. Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir að talið sé að Vodafone, og fleiri fjarskiptafyrirtæki, hafi brotið fjarskiptalög.

Allir hafa eitthvað að fela

Það vöknuðu margir af værum blundi þegar hakkari braust inn á heimasíðu Vodafone og opinberaði viðkvæmar persónuupplýsingar. Um 80 þúsund smáskilaboð, lykilorð og kennitölur voru meðal þess sem almenningur fékk aðgang að. Vodafone málið vekur upp spurningar um netöryggi en það er fáir sem kjósa að nýta sér þær dulkóðunarvarnir sem í boði eru og eru tiltölulega einfaldar í notkun.

Talinn fíkniefnasali eftir Vodafone-leka

Spilum ruglað saman við fíkniefni. Eyjólfur Þorleifsson, spilasmiður með meiru, er talinn dópsali eftir Vodafone-lekann og frjálslega túlkun netverja á sms-skilaboðum hans.

Kerfisfræðingur HSS kannast ekki við tölvuárás

Vefsíða Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) varð fyrir tölvuárás þann 16. janúar síðastliðinn. Hakkari skildi eftir sig tóma forsíðu, ef frá er talin undirskrift hans.

Engar úttektir á SMS-gagnagrunnum

Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir stofnunina hvorki hafa afkastagetu né fjármuni til að gera úttektir á fjarskiptafyrirtækjunum. Miðað við fjárlög fyrir næsta ár verður ekki breyting þar á.

Orðið hakkari hefur orðið klisjunni að bráð

Ótal spurningar hafa vaknað um netöryggi Íslands, tölvuglæpi og hakkara frá því að tyrkneskur tölvuþrjótur valsaði í gegnum netvarnir Vodafone á laugardaginn. Íslenskir tölvuhakkarar sem fréttastofa ræddi við í dag segja lítið mál að brjótast inn í Stjórnarráðið og aðrar stofnanir ríkisvaldsins. Kjartan Hreinn Njálsson.

Undirbúa hópmálssókn á hendur Vodafone

Málsóknarfélag vegna leka af vef Vodafone þann 30. nóvember 2013 birtir í dag auglýsingu í Fréttablaðinu þar sem kemur fram tilkynning um undirbúning á hópmálssókn á hendur Vodafone vegna upplýsingaleka af vef félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×