Enn fjölgar aflýsingum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 12. júní 2026 17:44 Flugferðirnar þrjár eru orðnar sex. Vísir Sex flugferðum hefur verið aflýst hjá Icelandair í dag vegna manneklu. Greint hafði verið frá þremur þeirra en nú hafa þrjú bæst við. Kjaradeilan harðnar enn. Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair staðfestir í samtali við fréttastofu að auk þriggja Evrópuflugferðum sem aflýst var í dag hefur flugferðum til Boston og New York seinnipartinn verið aflýst sem og fragtflugi til Liege í Belgíu. Útlit var fyrir helgi fyrir að deila Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair næðu sáttum. FÍA hvatti félagsmenn sína til að hlaupa undir bagga og halda áfram að selja frídaga sína. Í fréttabréfi til félaga frá í dag segir að þeir „sem treysta sér“ séu áfram hvattir til slíks. „Þess ber þó að geta að enginn er skikkaður í aukavinnu og mikilvægt að ganga ekki fram af þolmörkum og láta öryggið ávallt njóta vafans. Þreyta flýgur ekki í okkar bransa,“ segir í bréfinu.
Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair staðfestir í samtali við fréttastofu að auk þriggja Evrópuflugferðum sem aflýst var í dag hefur flugferðum til Boston og New York seinnipartinn verið aflýst sem og fragtflugi til Liege í Belgíu. Útlit var fyrir helgi fyrir að deila Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair næðu sáttum. FÍA hvatti félagsmenn sína til að hlaupa undir bagga og halda áfram að selja frídaga sína. Í fréttabréfi til félaga frá í dag segir að þeir „sem treysta sér“ séu áfram hvattir til slíks. „Þess ber þó að geta að enginn er skikkaður í aukavinnu og mikilvægt að ganga ekki fram af þolmörkum og láta öryggið ávallt njóta vafans. Þreyta flýgur ekki í okkar bransa,“ segir í bréfinu. Kæru félagar,Það hefur lítið gerst þessa vikuna í fundarhöldum við viðsemjendur okkar en samninganefnd FÍA vinnur hörðum höndum að því að fara yfir samningstilboð Icelandair. Það er langt á milli aðila eins og þið hafið sjálf séð og við sjáum því fram á að samningsferlið muni taka einhvern tíma. Samtal er í gangi þó ekki sé um formlega fundi að ræða.Því er ítrekað haldið fram í fjölmiðlum að flugmenn séu í aðgerðum og nú síðast í dag var flutt frétt þess efnis en það stenst ekki skoðun. Það er bersýnilegt að flugáætlun sumarsins einfaldlega stenst ekki álagsprófið hvað mönnun varðar. FÍA sem og almennir flugmenn vöruðu stjórnendur ítrekað við gjörnýtingarstefnunni sem gæti bitnað á Icelandair og farþegum. Stjórnendur létu varnaðarorð þessi sem vind um eyru þjóta og hafa stært sig af því að vera með enn meiri nýtingu á flugmönnum þetta sumarið samanborið við það síðasta.Flugmenn hafa helgað líf sitt Icelandair. Þeir hafa fórnað frídögum og orlofi í gegnum tíðina til þess að bjarga deginum hjá Icelandair. Persónuleg áform eru sett til hliðar til að bjarga hlutunum. Nú sem fyrr þá hvetjum við þá sem treysta sér til að leggjast á árarnar og stökkva til á frídögum eða orlofsdögum telji flugmenn sig fullhvílda og hæfa til flugs. Það er mikilvægt að ná heyi í hús. Þess ber þó að geta að enginn er skikkaður í aukavinnu og mikilvægt að ganga ekki fram af þolmörkum og láta öryggið ávallt njóta vafans. Þreyta flýgur ekki í okkar bransa.Góða helgi!
Kæru félagar,Það hefur lítið gerst þessa vikuna í fundarhöldum við viðsemjendur okkar en samninganefnd FÍA vinnur hörðum höndum að því að fara yfir samningstilboð Icelandair. Það er langt á milli aðila eins og þið hafið sjálf séð og við sjáum því fram á að samningsferlið muni taka einhvern tíma. Samtal er í gangi þó ekki sé um formlega fundi að ræða.Því er ítrekað haldið fram í fjölmiðlum að flugmenn séu í aðgerðum og nú síðast í dag var flutt frétt þess efnis en það stenst ekki skoðun. Það er bersýnilegt að flugáætlun sumarsins einfaldlega stenst ekki álagsprófið hvað mönnun varðar. FÍA sem og almennir flugmenn vöruðu stjórnendur ítrekað við gjörnýtingarstefnunni sem gæti bitnað á Icelandair og farþegum. Stjórnendur létu varnaðarorð þessi sem vind um eyru þjóta og hafa stært sig af því að vera með enn meiri nýtingu á flugmönnum þetta sumarið samanborið við það síðasta.Flugmenn hafa helgað líf sitt Icelandair. Þeir hafa fórnað frídögum og orlofi í gegnum tíðina til þess að bjarga deginum hjá Icelandair. Persónuleg áform eru sett til hliðar til að bjarga hlutunum. Nú sem fyrr þá hvetjum við þá sem treysta sér til að leggjast á árarnar og stökkva til á frídögum eða orlofsdögum telji flugmenn sig fullhvílda og hæfa til flugs. Það er mikilvægt að ná heyi í hús. Þess ber þó að geta að enginn er skikkaður í aukavinnu og mikilvægt að ganga ekki fram af þolmörkum og láta öryggið ávallt njóta vafans. Þreyta flýgur ekki í okkar bransa.Góða helgi!
Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira