Fótbolti

Viðar er nú kallaður syngjandi senterinn í VIF

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viðar Örn Kjartansson var frábær í Pepsi-deildinni síðasta sumar.
Viðar Örn Kjartansson var frábær í Pepsi-deildinni síðasta sumar. Vísir/Vilhelm
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson var einn af þremur markakóngum Pepsi-deildar karla í fótbolta síðasta sumar og samdi í kjölfarið við norska úrvalsdeildarliðið Vålerenga.

Viðar Örn stimplaði sig vel inn hjá stuðningsmönnum Vålerenga á dögunum þegar hann söng Creed-lagið "Six Feet From The Edge" á kynningarfundi á nýjum leikmönnum liðsins.

Norska Dagblaðið fjallaði um hin tónelska íslenska framherja og vonaðist blaðamaðurinn eftir að Viðar hitti markið jafnvel og hann hitti á tónana í flutningum sínum.

Viðar var líka kokhraustur í viðtali við blaðamann Dagblaðsins og segist ætla að skora minnsta kosti fimmtán mörk í norsku úrvalsdeildinni næsta sumar.

Það er hægt að sjá Viðar Örn syngja þetta krefjandi rokklag með því að smella hér fyrir neðan en greinina á vefsíðu Dagblaðsins má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×