Bíó og sjónvarp

Fjölskyldudrama frumsýnt í dag

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kvikmyndin August: Osage County er frumsýnd í dag í Háskólabíói, Smárabíói og Borgarbíói Akureyri.

Myndin er gerð eftir samnefndu leikriti Tracy Letts, en það hlaut Pulitzer-verðlaunin árið 2008 og var sýnt tæplega sjö hundruð sinnum á Broadway við miklar vinsældir. Á Íslandi sló leikritið í gegn á fjölum Borgarleikhússins undir titlinum Fjölskyldan og var sýnt rúmlega sextíu sinnum!

Sagan gerist í Oklahoma, á heimili hjónanna Beverly og Violet Weston sem eiga þrjár uppkomnar dætur, þær Ivy, Barböru og Karen. Dag einn hverfur Beverly sporlaust sem verður til þess að Weston-dæturnar hittast á ný á æskuheimilinu.

Það er stór og þéttur leikhópur sem fer með helstu hlutverkin í August: Osage County, en þess má geta að leikkonurnar Meryl Streep og Julia Roberts eru tilnefndar til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sín í myndinni.  

Í öðrum hlutverkum eru Sam Shepard, Ewan McGregor og Juliette Lewis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×