Innlent

Skjálftavirkni enn mikil og gos talið líklegt

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Athuganir hafa leitt í ljós að ekki var eldgos undir Dyngjujökli í gær. Skjálftavirkni í Bárðarbungu og Dyngjujökli er samt enn mjög mikil og fagstjóri jarðvár hjá Veðurstofunni segir enn líkur á gosi. Engu að síður hafa almannavarnir fært viðbúnaðarstig norðan Vatnajökuls niður í hættustig úr neyðarstigi. 

Sjö hundruð skjálftar mældust í Bárðarbungu og undir Dyngjujökli á tólf klukkustunda tímabili í nótt og í morgun og voru skjálftarnir heldur stærri en undanfarna daga. Tveir stórir skjálftar yfir 5 að stærð urðu í Bárðarbunguöskjunni í nótt. Virknin undir Dyngjujökli hefur færst til norðurs og er nú mest undir jaðri jökulsins þar sem skjálfti upp á 4,2 að stærð mældist í morgun.

Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld fór Kristín Jónsdóttir, fagstjóri jarðvár hjá Veðurstofunni, yfir nýjustu skjálftana á korti sem sýnir fjölda jarðskjálfta frá því jarðhræringar í Bárðarbungu hófust hinn 16. ágúst sl.


Óútskýrður lágtíðniórói

Eins og komið hefur fram hafa nýjustu athuganir leitt ljós gós hófst ekki undir Dyngjujökli í gær eins og í fyrstu var talið. Sá mikli lágtíðniórói sem mældist á sér aðrar skýringar sem eru í raun óþekktar, að sögn Kristínar. Er unnið að greiningu á því hvað olli honum. 

Ríkislögreglustjóri ákvað í dag að lækka almannavarnastig vegna jarðskjálftavirkni kringum Bárðarbungu úr neyðarstigi í hættustig.

Víðir Reynisson deildarstjóri Almannavarna hjá ríkislögreglustjóra segir að það hafi ekki verið röng ákvörðun að lýsa yfir neyðarstigi í gær. Ákvörðunin hafi verið tekin í krafti bestu upplýsinga þess tíma. Að sögn Víðis verður þó farið yfir verkferla hjá Almannavörnum til að meta hvort hægt hafi verið að bregðast einhvern veginn öðruvísi við. 

Rætt var við Kristínu Jónsdóttur fagstjóra jarðvár hjá Veðurstofunni og Víði Reynisson deildarstjóra Almannavarna í fréttum Stöðvar 2 og má nálgast viðtölin í meðfylgjandi myndskeiði. 

Tengdar fréttir

Alþjóðleg flugfélög sneiða framhjá flugbannsvæðinu

Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, segir að þar sé vel fylgst vel með gangi máli. „Við erum með sérstaka eldgosavakt í gangi. Við höfum samráð við fræðimenn og aðila sem fræða okkur um stöðu mála.

Ómar fylgist með jöklinum

„Ég er búinn að vera hérna að horfa á jökulinn síðan í hádeginu,“ segir Ómar Ragnarsson.

Berggangurinn 4 kílómetrar á hæð

Undir Dyngjujökli hefur myndast langur berggangur þar sem kvika þrengir sér inn. Eitt hundrað milljónir rúmmetra af kviku hafa aðeins metra breiða sprunguna og átökin hafa valdið þúsundum jarðskjálfta. Jarðskjálftar, allt að fjögur stig, mældust í öskju Bárðarbungu í gær.

Vegir verða rofnir komi til flóðs

Vegir við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum verða rofnir komi til flóðs. Tæki eru til staðar í Öxarfirði og tæki eru á leiðinni að brúnni við Grímsstaði.

Almannavarnastig lækkað úr neyðarstigi

Ríkislögreglustjóri hefur að höfðu samráði við lögreglustjórana á Húsavík og Seyðisfirði ákveðið að lækka almannavarnastig vegna jarðskjálftavirkni kringum Bárðarbungu úr neyðarstigi í hættustig.

Alþjóðaflugið enn opið

Ekki hefur verið lokað fyrir flug til og frá landinu. Talið er að lítið gos sé hafið undir Dyngjujökli að því er kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum.

Veðurstofan og pollrólegar geitur bjóða góða nótt

„Með kveðju frá okkur og þessum pollrólegu geitum í Öxarfirði vonum við að þið farið varlega og allir sofi vel í nótt. Við erum á vaktinni,“ segir á Facebook-síðu Veðurstofu Íslands.

Aðvörunarstig fyrir flug lækkað

Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að lækka aðvörunarstig fyrir flug í appelsínugulan úr rauðu. Athuganir hafa leitt í ljós að ekki var gos undir Dyngjujökli í gær. Sá mikli lágtíðniórói sem Veðurstofan mælid í gær á sér því aðrar skýringar.

Undirbúa opnun fjöldahjálparstöðva

Undirbúningar er hafinn að því að opna fjöldahjálparstöðvar á Húsavík, Kópaskeri og í grunnskólanum í Reykjahlíð á Mývatni komi til þess að byggðirnar í Kelduhverfi, Núpasveit og Öxarfirði verði rýmdar.

Aukin skjálftavirkni við Bárðarbungu

Skjálftavirkni við Bárðarbungu hefur verið að aukast í morgun og hefur aukinn órói komið fram á mælum Veðurstofu Íslands undanfarna klukkustund eða svo. Ekki sjást merki um að kvika sé á leið til yfirborðs. Skjálftarnir eru flestir á 5-10 km dýpi.

Náttúran í öllu sínu veldi

Fljótandi kvika, sígandi askja, jarðflekahreyfingar og myndun 25 kílómetra langs berggangs er meðal þess sem útskýrir mikla skjálfavirkni í norðvestanverðum Vatnajökli þessa stundina.

Sigmundur Davíð kallaður út í Skógarhlíð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Bjarni Benediktsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Haraldur Jóhannesson funda nú í Samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð ásamt fleirum vegna gossins í Dyngjujökli.

Gosóróinn í Gjálp hófst daginn eftir þann stóra

Jarðskjálftinn í nótt upp á 5,3 stig beinir enn sjónum að Gjálpargosinu í Vatnajökli árið 1996. Þá var það einmitt skjálfti af þeirri stærð sem talinn er hafa hrundið eldgosinu af stað.

Orsakir óróa hljóta að vera aðrar en eldgos

Ítarlegar athuganir úr lofti með flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF sýna að engin merki eru um að gos eða bráðnun við botn hafi átt sér stað undir Dyngjujökli í gær.

Skjálftavirkni mikil í nótt

Ekkert hefur dregið úr skjálftavirkni í nótt. Tveir skjálftar yfir 5.0 hafa mælst frá því á miðnætti.

Hraungos hafið undir Dyngjujökli

Talið er að lítið hraungos sér hafið undir Dyngjujökli. Talið er að um 150-400 metra þykkur ís sé yfir svæðinu. Litakóði fyrir flug hefur verið færður upp færður úr appelsínugulu í rautt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×