Grunar Hafnarfjarðarbæ um „mjög alvarlega skjalafölsun“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. júní 2014 09:45 Visir/stefán
Helgi Númason endurskoðandi hefur farið þess á leit við Hafnafjarðarbæ að bæjarfélagið útskýri hvers vegna nafns skrifstofu hans hafi verið notað á þremur ársreikningum félags í eigu bæjarins. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarstjórnar vegna fundar hennar í gær.Í bréfi frá lögmannsskrifstofu mannsins eru málavextir tíundaðir en í júlímánuði árið 2009 stofnaði Hafnarfjarðabær einkahlutafélagið GN eignir ehf. en hlutverk þess var að taka yfir skóla- og leikskólabyggingar sem bærinn hafði áður leigt af Nýsi áður en félagið fór í þrot. Í bréfinu kemur fram að Helgi hafi, við stofnun GN eigna, tekið að sér að vera endurskoðandi þess en að hann hafi ekki komið að endurskoðun ársreikninga félagsins frá því að ársreikningur vegna 2009 var gerður. Honum hafi þó orðið ljóst fyrir skömmu að svo virtist sem árseikningar félagsins hafa alla tíð borið það með sér að skrifstofa hans hafi endurskoðað þá. „Sé það rétt, þá er um grófa misnotkun á nafni hans og faglegum heiðri að ræða, auk þess sem slík háttsemi hlýtur að teljast mjög alvarleg skjalafölsun,“ segir í bréfi lögmannstofunnar og bætt er við að um grafalvarlegt mál gæti verið að ræða sem umbjóðandinn taki mjög nærri sér. Vísir kannaði ársreikninga GN eigna hjá Creditinfo og bera þeir vitni um að Helgi og skrifstofa hans séu einnig sögð hafa skrifað undir reikninga félagsins fyrir árin 2010, 2011 og 2012. Bæjarráð Hafnfjarðar hefur falið sviðsstjóra að svara erindi Helga.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira