Skemmdarverk unnin á bíl björgunarsveitarmanns í útkalli Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 16. júní 2014 10:52 Jóhann tók mynd af leiðslunum þegar hann gerði sér grein fyrir skemmdunu. Atvikið átti sér stað í Eyjafjarðarsveit um helgina. „
Það er alveg ótrúlegt lið á ferðinni. Ég hef ekki hugmynd um hvað er hægt að segja við svona,“ sagði Jóhann Jóhannesson, björgunarsveitarmaður, sem lenti í því um helgina að óprúttinn aðili fór inn í bíl hans og fíktaði í og klippti á leiðslur. „Ég skil bílinn eftir fyrir utan björgunarsveitarhúsið Dalborg í Eyjafjarðarsveit, ég er í burtu í rúman sólarhring og í millitíðinni er farið inn í bílinn. Það er eins og einhver hafi verið að reyna að tengja framhjá.“ Jóhann var að vonum ekki sáttur við atvikið, sérstaklega þótti honum sárt að vera nýkominn úr björgunarsveitarútkalli klukkan 4 um nótt og lenda í þessu. Málið er undarlegt í ljósi þess að engu var stolið. „Það er mjög skrýtið. Það voru til dæmis verkfæri fyrir tugi þúsunda í skottinu.“ Hann segir í samtali við Vísi ekki hafa hugmynd um hvers vegna í ósköpunum einhver myndi gera þetta, bíllinn sé ekki verðmætur, nema ef til vill fyrir eiganda. „Þetta er gömul Toyota Corolla.“ Jóhann tilkynnti þetta ekki til lögreglu þar sem hann gerði sér ekki grein fyrir því í fyrstu hvað hefði gerst. „Ég hélt að bíllinn væri bilaður og við renndum honum í gang. Svo þegar ég kom heim fór ég að skoða þetta betur og fattaði þá hvernig í þessu lá.“ Enginn liggur undir grun en fylgst var með bílastæðinu af starfsmanni tjaldsvæðis sem er nálægt björgunarhúsinu til rúmlega þrjú aðfaranótt 15. júní og hefur skemmdarvargurinn farið inn í bílinn eftir það. Jóhann velti því fyrir sér hvort atvikið hefði átt að beinast að sér persónulega, þar sem engin ástæða virðist fyrir skemmdarverkunum, en enginn kemur upp í huga hans sem gæti átt sökótt við hann.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira