Ástarlásar í Reykjanesbæ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. júní 2014 15:32 vísir/gunnar ingvi
Íslendingar geta nú innsiglað ást sína með því að fara að Brúnni milli heimsálfa í Reykjanesbæ. Hengilásar með nöfnum ástfanginna para eru nýlega farnir að sjást á brúnni en þessi siður, að rita nöfn sín á lása og krækja í brýrnar, hefur til dæmis tíðkast í París undanfarin ár. Það er til merkis um að pörin hafi skilið hjörtu sín eftir í borginni og að ást þeirra verði eilíf. Pörin henda lyklinum ofan í ánna Signu og þar með hafa þau innsiglað ást sína. Vísir sagði frá því á dögunum þegar hluti handriði umræddar brúar í París hrundi undan þunga lásanna. Siðurinn hefur þó tíðkast í fleiri borgum og sjá má alls kyns lása, í hinum ýmsu stærðum, gerðum og litum víðs vegar um heiminn. Þó er þetta í fyrsta sinn sem þetta er gert á Íslandi.mynd/gunnar ingviAðsóknin að brúnni í Reykjanesbæ er nokkuð góð, að sögn Guðlaugar Maríu Lewis fræðslufulltrúa í Reykjanesbæ, en hana mætti þó bæta. Hún segir að á döfinni sé alþjóðlegur viðburður við brúna í haust sem komi líklega til með að vekja enn frekari athygli á þessum skemmtilega stað. „Stefnt er að því að þessi viðburður geti orðið árlegur og dregið að sér fjölda gesta,“ segir Guðlaug en telur þó of snemmt að greina nánar frá þessum viðburði að svo stöddu. „Við höfum lagt það til að fólk láti mynda sig á þann veg að það líti út fyrir að það sé að halda á brúnni, svipað og þegar fólk lætur mynda sig þannig að það líti út fyrir að það sé að styðja við skakka turninn í Pisa. Þessi hugmynd er komin frá nemanda í Akurskóla í Reykjanesbæ, Daníel Alexanderssyni,“ segir Guðlaug enn fremur. Brúnni var komið fyrir árið 2002 yfir gjá sem myndast hefur vegna hreyfingar meginlandsflekanna, Evrasíu- og Norður-Ameríkuflekanna, sem mætast hér á landi.mynd/gunnar ingvimynd/gunnar ingviDaníel Alexandersson heldur á brúnni.mynd/víkurfréttir
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira