Tvær sjálfsmorðsárásir á tveimur dögum Haraldur Guðmundsson skrifar 31. desember 2013 07:00 Sprengjan var svo öflug að strætisvagninn tættist í sundur. Nordicphots/AFP.
Fjórtán létust og um þrjátíu særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í borginni Volgorad í suðurhluta Rússlands í gær. Sprengjan sprakk í strætisvagni á háannatíma. Enginn hefur lýst árásinni á hendur sér. Rússnesk yfirvöld segja að tengsl séu á milli árásarinnar og sjálfsmorðsárásar frá því á sunnudag. Þá sprengdi kona sig í loft upp við málmleitarhlið í anddyri aðaljárnbrautarstöðvar Volgograd, með þeim afleiðingum að sautján létust og yfir þrjátíu særðust. Vladimir Markin, yfirmaður innan rússnesku lögreglunnar, sagði í yfirlýsingu í gær að sprengjan sem notuð var í strætisvagninum hafi verið svipuð þeirri sem sprakk á sunnudag. „Það staðfestir að þessar tvær hryðjuverkaárásir tengjast,“ sagði hann. Markin sagði stjórnvöld ætla að auka öryggisviðbúnað í landinu í þeirri von um að koma í veg fyrir frekari hryðjuverk. Rúmir tveir mánuðir eru liðnir síðan kona sprengdi sig í loft upp í öðrum strætisvagni í Volgograd. Þá létust sex. Borgin, sem hét áður Stalíngrad, hefur mikið táknrænt gildi fyrir Rússa því þar sigruðu þeir Þjóðverja í Síðari heimsstyrjöldinni og snéru við gangi hennar. Árásirnar þrjár eru taldar tengjast ummælum Doku Umarov, leiðtoga uppreisnarmanna í Téténíu, en hann hótaði fyrr á árinu að árásum fylgismanna hans yrði beint gegn óbreyttum borgurum í Rússlandi. Rússnesk yfirvöld hafa vaxandi áhyggjur af árásum hryðjuverkamanna nú þegar um mánuður er í opnunarathöfn vetrarólympíuleikanna sem fara fram í rússnesku borginni Sachi. Þau hafa nú þegar hert öryggisviðbúnað sinn í borginni en árásir síðustu daga hafa leitt veikleika þeirra í öðrum borgum í ljós. Alþjóðaólympíunefndin sendiaðstandendum þeirra sem létust í árásinni á sunnudag samúðarkveðjur í yfirlýsingu. Þar kom jafnframt fram að nefndin hefur fulla trú á því að Rússum takist að koma í veg fyrir að árásir hryðjuverkamanna nái til vetrarólympíuleikanna.
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira