Nær engar fráveitur í lagi við Þingvallavatn Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. júlí 2013 09:00 Rotþró á Hakinu var tekin í notkun 2011 en uppfyllir ekki kröfur um hreinsun skolps. Rauðu punktarnir sýna hvar ekki eru tæmdar rotþrær við bústaði í landi þjóðgarðsins við vestanvert Þingvallavatn. Grænu punktarnir merkja rotþrær sem vitað er til að séu tæmdar. mynd/heilbrigðiseftirlit suðurlands
Aðeins fjögur prósent bygginga á vatnsverndarsvæði Þingvallavatns uppfylla skilyrði sem sett eru á svæðinu. Ástandið er sagt óviðunandi. „Er einungis hægt að fullyrða að 7 prósent þeirrar fráveitu sem könnunin náði til, sé í lagi en einungis 4 prósent ef teknir eru með þessir 34 aðilar sem ekki náðist í. Um 39 prósent fráveitna uppfylla almennar kröfur um fráveitu en ekki kröfur sem gilda á svæðinu. Ríflega helmingur fráveitna uppfyllir engar kröfur,“ segir í skýrslu sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands vann í samstarfi við þjóðgarðinn á Þingvöllum.Vatnsverndarsvæðið við Þingvallavatn.Vatnsverndarsvæði tekur yfir nær allt Þingvallavatn en aðeins var metið ástand fráveitna á lóðum innan þjóðgarðsins með því að óska svara frá eigendum húsa þar. Ekki náðist að fá svör frá öllum eins og fram kemur. „Á verndarsvæði Þingvallavatns er krafist ítarlegri hreinsunar á fráveituvatni heldur en annars staðar á Íslandi. Skal viðbótarþrep fráveitu sérstaklega miðað að því að lækka gildi mengunarefna sem Þingvallavatn er talið viðkvæmt fyrir eins og til dæmis köfnunarefni,“ er útskýrt í skýrslunni. Fráveitumálin eru meira að segja ólestri á Hakinu þar sem vorið 2011 var tekin í notkun ný salernisaðsstaða „með afkastamiklu rotþróarkerfi“ eins og segir í nýútkominni starfsskýrslu Þingvallanefndar. „Þrátt fyrir viðurkennda fráveitulausn uppfyllir stöðin ekki kröfur er varða hreinsun skólps, sérstaklega hvað varðar minnkun köfnunarefnis og fósfórs en lágt hitastig yfir vetrartímann dregur verulega úr hreinsivirkni. Líklegt er að sama gildi um aðrar rotþrær á verndarsvæðinu,“ segir heilbrigðiseftirlitð. Frestur til að koma upp rotþróm sem uppfylla skilyrði á vatnsverndarsvæðinu var fyrir fjórum árum framlengdur til ársins 2020. Á kynningarfundi sem heilbrigðiseftirlitið hélt í júní með sumarhúsaeigendum við Þingvallavatn kom fram að lausnir á rotþróarvandanum séu einfaldlega ekki fundnar. „Úrbætur og farsæl lausn þessara mála er forsenda þess að geta tryggt heilnæmara neysluvatn og vernda Þingvallavatn fyrir óþarfa mengun af mannavöldum,“ ályktaði sveitarstjórn Bláskógabyggðar um málið.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira