Skorradalurinn er hættuleg púðurtunna Birgir Þór Harðarson skrifar 2. apríl 2013 12:00 Mikil hætta skapaðist þegar eldurinn breiddi úr sér. mynd/örn Arnarson
Engar sértækar viðbragðsáætlanir eru til fyrir þéttar sumarhúsabyggðir á Íslandi nema ef slík áætlun hefur verið gerð að frumkvæði svæðisbundinna yfirvalda. Viðbragðsáætlun vegna gróðurelda í Skorradal verður kynnt í vikunni. Hætta skapaðist þegar neisti frá flugeldi varð að miklum sinueldi í Skorradal á laugardagskvöldið. Algert logn var í Skorradal sem gerði slökkvistarf auðveldara. „Þarna hjálpaðist allt að. Það var alveg dauðalogn á meðan við börðumst við eldinn,“ segir Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð. Einnig hafi skipt miklu að fólk úr nálægum húsum hjálpaði til við slökkvistarfið. „Það eru ekki til heildstæðar séráætlanir en það eru til almennar viðbragðsáætlanir og eftir þeim er farið í þessum tilvikum,“ segir Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. Ekki var stuðst við viðbragðsáætlunina í Skorradal um helgina en í henni eru vandamál varðandi vatnstöku úr Skorradalsvatni nefnd, auk þess sem slóðar eru sagðir illfærir þungum slökkviliðsbílum. „Ástandið getur orðið mjög hættulegt vegna veðurfarsbreytinga,“ segir Bjarni og segir Skorradal vera eins og hættulega púðurtunnu í miklum þurrkum. Sökum þéttleika sumarhúsabyggðarinnar getur eignatjón orðið verulegt ef eldur læsir sig í gróðurinn á svæðinu. Þá er hugsanlegt að fólk verði innlyksa vegna gróðurelda á svæðinu.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Sjá meira