Laga á stíginn upp á Esju 30. mars 2013 06:00 Óhemjumargir ganga á Esju á ári hverju, misvel búnir og í alls konar veðri. Nokkuð hefur verið um slys á fjallinu og getur þurft marga björgunarmenn til að bera niður einn slasaðan.Fréttablaðið/Pjetur
Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur fengið leyfi fyrir endurbótum á Esjustíg. Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins, segir vilja standa til þess að byrja að laga stíginn strax í sumar. Það ráðist þó af því hvernig gangi að safna styrkjum. Fjöldi fólks gengur á Þverfellshorn í Esju á ári hverju og segir Helgi það öryggisatriði að göngustígurinn verði sem best úr garði gerður. „Umferðin þarna er alveg rosaleg og skiptir máli að gera þennan stíg þannig að björgunarsveitir geti tekið fólk þarna niður tiltölulega þægilega, það er nú eitt af stóru málunum,“ segir Helgi og bendir á að brenna vilji við að fólk gleymi því að það sé þarna að ganga á fjall og líti á Esjuna eins og hvert annað útivistarsvæði. „Ef einhver fótbrotnar, handleggsbrotnar eða dettur á höfuðið þá þarf að senda þarna upp á bilinu 20 til 30 manns til að sækja viðkomandi.“ Áætlað er að endurbættur stígur verði innan við tveggja metra breiður og að efni í hann verði sótt í nærliggjandi umhverfi þannig að hann falli sem best í það land sem hann liggur um. Í greinargerð Skógræktarfélagsins um stíginn segir að reynt verði að fylgja núverandi gönguleið sem mest, en þó megi gera ráð fyrir að reynt verði að hliðra honum sem mest úr votlendissvæðum inn á þurrlendi og mela þar sem því verði við komið. „Þar er gert ráð fyrir blönduðum lausnum, að hluta til með því að „brúa“ votlendin með timburverki og að hluta með því að flytja í stígstæðið malarefni úr nærliggjandi melum,“ segir þar. Helgi bendir á að Skógræktarfélagið sé meðal frjálsra félagasamtaka og er ekki með sérstaka tekjustofna til að vinna Esjustíg. „Við ráðgerum því að vinna þetta eftir því sem okkur tekst að fá styrki í verkið,“ segir hann. Í gegnum tíðina hefur Pokasjóður verið einn öflugasti stuðningsmaður samtakanna. „Ég vona innilega að þeir veiti okkur myndarlegan styrk til að fara þarna í góða aðgerð í sumar. En ef við aftur á móti finnum engan pening í þetta þá gerum við ekki neitt.“ Nokkurn tíma tekur að byggja upp nýjan stíg og bendir Helgi á að víðar sé hægt að ganga á Esju en upp og niður á Þverfell. „Við höfum verið að myndast við að búa til gönguleiðakort af Esjuhlíðunum, en þær eru margar skemmtilegar aðrar.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Eldur í sendibíl á Miklubraut Innlent Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Erlent Fleiri fréttir Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Sjá meira