Á eftir að ræða við ráðherra um leyfið Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 26. mars 2013 06:00 Gísli Tryggvason
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, kveðst ekki hafa verið í fríi frá störfum vegna framboðs síns fyrir Dögun þótt ekki hafi birst frétt á vef embættis hans síðan 21. desember. „Það hefur bara verið lítið að frétta," segir Gísli, sem gerir ráð fyrir að taka sér frí frá störfum í apríl vegna framboðsins. Alþingiskosningarnar verða haldnar 27. apríl. „Ég á eftir að ræða það við ráðherra," greinir Gísli frá. Talsmaður neytenda kveðst ekkert hafa frétt nánar um tillöguna um að embætti hans verði lagt niður. Greint var frá því í lok síðastliðins árs að starfshópur um skipulag neytendamála, sem innanríkisráðherra skipaði, hefði lagt til að embættið yrði lagt niður og málaflokkurinn styrktur með öðrum hætti. Embætti talsmanns neytenda var stofnað í júlí 2005. Samkvæmt lögum ber talsmanninum að standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda og stuðla að neytendavernd, að því er segir á vef embættisins. Í lögum um Neytendastofu og talsmann neytenda segir að talsmaður neytenda skuli gefa árlega skýrslu um starfsemi sína á liðnu almanaksári. Skýrsluna skuli prenta og birta opinberlega. Það hefur Gísli aldrei gert. „Ég hef ekki gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun og ekki lagt í þann kostnað. Ég geri ekki ráð fyrir að mikil eftirspurn sé eftir prentaðri skýrslu. Allar upplýsingar birtast á vefnum nema ársreikningur. Það mætti hins vegar íhuga að birta auglýsingu í fjölmiðlum með helstu upplýsingum. Þannig kæmist embættið ódýrt frá þessu." Gísli kannast ekki við að hafa fengið athugasemdir frá ráðuneytinu vegna vanskilanna.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Sjá meira