Tók að sér ungling og misnotaði hann Stígur Helgason skrifar 28. mars 2013 06:00
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær 51 árs mann, Ómar Traustason, í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa níðst kynferðislega á ungum pilti um margra mánaða skeið í upphafi þessarar aldar. Ómar hefur áður fengið dóm fyrir að misnota börn. Ákæra á hendur Ómari var gefin út 6. júlí í fyrra. Í henni var honum gefið að sök að hafa, frá árinu 2000 og fram í nóvember 2001, misnotað piltinn reglulega á meðan hann bjó hjá honum á tveimur stöðum. Pilturinn var á þessum tíma fjórtán og fimmtán ára gamall og hafði leitað til Ómars þegar fjölskylda hans varð húsnæðislaus. Pilturinn fékk húsaskjól hjá Ómari, bæði í Breiðholti og í Kópavogi, og mat og pening fyrir nesti í skólann, auk þess sem Ómar hélt að honum fíkniefnum, að því er segir í ákærunni. Ómar notfærði sér síðan þessa yfirburðastöðu sína gagnvart piltinum, „vegna aldurs, reynslu og líkamlegra yfirburða“, og hafði ítrekað munnmök við hann á meðan hann svaf. Auk þess fékk hann piltinn einu sinni til að fróa sér og reyndi í eitt sinn að hafa við hann endaþarmsmök. Ómar neitaði alfarið sök og sagði ekkert af þessu hafa átt sér stað. Engu að síður var hann sakfelldur fyrir alla liði ákærunnar, og flokkast brotin sem nauðgun og auk þess brot gegn barni sem hann hafði trúnaðarskyldum að gegna gagnvart. Þolandinn, sem í dag er 26 ára, krafðist 2,7 milljóna í miskabætur vegna ofbeldisins. Ómar er dæmdur til að greiða honum tvær milljónir. Ómar er búsettur í Danmörku og var ekki viðstaddur dómsuppkvaðninguna í gær. Dómnum verður áfrýjað til Hæstaréttar en komi til afplánunar liggur ekki fyrir hvort Ómar muni sitja inni á Íslandi eða í Danmörku.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Sjá meira