Skór númer 42 aldrei dýrari en skór númer 38 Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 26. mars 2013 10:07 Guðjón Arngrímsson hjá Icelandair segir umræðuna hafa komið upp áður. „
Stutta svarið er nei, ekki af neinni alvöru," segir Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair, um það hvort rætt hafi verið um verðhækkanir á fargjöldum þyngri farþega flugfélagsins.Vísir greindi í gær frá uppástungum norska prófessorsins Bharat P. Bhatta í viðskiptatímaritinu Journal of Revenue and Pricing Management, en hann hvetur flugfélög til að verðleggja flugmiða eftir líkamsþyngd farþega. Í samtali við útvarpsþáttinn Í bítið segir Guðjón þessa umræðu hafa komið upp áður og þá í tengslum við þjónustu og sanngirni milli flugfarþega. „Fólk er auðvitað súrt ef það lendir kannski í miðjusæti milli tveggja mjög stórra einstaklinga," segir Guðjón, en hann segir umræðuna nú vera á öðrum forsendum þar sem norski prófessorinn skrifi út frá hagfræði- og rekstrarsjónarmiðum. „Hann er að segja að þarna geti flugfélög náð sér í aukatekjur með því að rukka þá sem eru stærri og feitari, en þessu fylgja alls konar flækjustig sem erfitt er að sjá fyrir, fólk er kannski að kaupa miða með hálfs árs fyrirvara, auk þess sem maður sér aldrei að skór númer 42 sé dýrari en skór númer 38." Guðjón segir þau rök að aukakíló hafi í för með sér aukin kostnað og útblástursmengun vera góð og gild. Hins vegar sé gerður greinarmunur á fólksflutningum og fragt. „Fragt er flutt eftir rúmmáli og þyngd en fólk eftir einstaklingum. Sætin í flugvélum eru sá staðall sem búinn er til utan um fólkið og það er auðvitað gerð sú krafa að þú passir í það. Það fer auðvitað betur um lítið fólk og nett, sem situr þá í mjög rúmgóðum stól, en það er þrengra um þá stærri og þykkari, það er engin spurning. Ef maður vill fara út í þau sanngirnissjónarmið er að sjálfsögðu hægt að segja: „Ég er stór og mikill, sætið mitt er þröngt og það fer ekki vel um mig. Af hverju á ég að borga sama fargjald og manneskjan við hliðina á mér, sem fer vel um?""
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Fleiri fréttir Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Barn slasaðist þegar hringekja stöðvaðist harkalega „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Sjá meira