Segja vinnubrögð ASÍ óvönduð og ómarktæk Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 26. mars 2013 16:34
Fréttatilkynning ASÍ er staðfesting á óvönduðum og ómarktækum vinnubrögðum. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Högum sem fyrirtækið sendi frá sér í dag. Samkvæmt verðlagsmælingum ASÍ hefur vörukarfa í Bónus hækkað um liðlega 12 prósent umfram verðbólgu frá árinu 2008. Hagar gagnrýna mælingar ASÍ og segja þær ekki standast skoðun.Fréttatilkynning Haga „Í fréttatilkynningu frá ASÍ í dag er alhæft um þróun verðlags á dagvörumarkaði. Þar segir að vörukarfan í Bónus hafi hækkað langt umfram vísitölu neysluverðs frá árinu 2008. Á meðan vísitala neysluverðs hafi hækkað um 46% hafi vörukarfa Bónus hækkað um 64%. Tilgreint er að ákveðinn keppinautur hafi hækkað vörukörfuna um 26% á sama tímabili. Í þessu felst fullyrðing um að Bónus hafi hækkað verðlag um 40% umfram hækkun neysluverðsvísitölu. Á árinu 2008 bauð Bónus ódýrasta valkostinn á dagvörumarkaði. Í dag býður Bónus enn ódýrasta valkostinn á dagvörumarkaði. Það er því ljóst að aðferðir ASÍ við mælingu og upplýsingagjöf standast enga skoðun. Fréttatilkynning ASÍ segir í raun að Bónus hafi hækkað verð um 40% umfram hækkun almenns verðlags á meðan verðhækkun keppinautar hafi verið um 40% minni en hækkun almenns verðlags. Augljóst er að sá keppinautur ætti að vera ekki bara ódýrasti, heldur lang ódýrasti valkosturinn á dagvörumarkaði skv. niðurstöðu ASÍ. Aðferðir ASÍ við mælingu verðlags hafa verið gagnrýndar um langt skeið og af fjölmörgum aðilum. Ekki að ástæðulausu, eins og hér er bent á. Rétt er að taka það fram að Bónus er fylgjandi vönduðum verðkönnunum og upplýsingagjöf til viðskiptavina sinna."
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Sjá meira