"Samkynhneigð er mun algengari hjá knattspyrnukonum" Jóhannes Stefánsson skrifar 18. júní 2013 16:17 Niðurstaðan er jákvæð fyrir samkynhneigða knattspyrnuiðkendur hér á landi. Mynd/ Samsett
Viðhorf í garð samkynhneigðra iðkenda í knattspyrnu á Íslandi er almennt séð mjög gott. Þetta eru niðurstöður nýlegs B.A.-verkefnis við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Elvar Friðriksson og Margrét Lára Viðarsdóttir framkvæmdu rannsóknina, en þau eru bæði afreksmenn í íþróttum. Elvar spilar handbolta með Val og Margrét Lára hefur verið ein besta knattspyrnukona landsins síðustu ár. Rannsóknin leiddi til að mynda í ljós að rúmlega 93% aðspurðra höfðu ekkert á móti því að hafa samkynhneigðan einstakling í sínu liði. „Viðhorf gagnvart samkynhneigðum kom bara mjög vel út. Við vildum með ritgerðinni sjá hvert viðhorfið væri almennt til þessa minnihlutahóps og niðurstöðurnar komu að flestu leyti mjög vel út," segir Elvar Friðriksson, annar höfundanna, í samtali við Vísi. Elvar segir dálítinn mun hafa verið á viðhorfunum á milli kynjanna. „Við skoðuðum þetta aðeins út frá kynjunum og það var örlítill munur á þeim. Viðhorf kvennanna var betra gagnvart samkynhneigðum." Aðspurður að því hvers vegna Elvar teldi þennan mun vera á sagði hann: „Mögulega er þetta vegna þess að það eru fleiri samkynhneigðir einstaklingar í kvennaboltanum en það er erfitt að segja nákvæmlega af hverju." Þá segir einnig í umræðukafla verkefnisins: „Það er vel þekkt að samkynhneigð er mun algengari hjá knattspyrnukonum en körlum," en höfundar draga þá ályktun að muninn á viðhorfi kynjanna megi að einhverju leyti rekja til þessa.Flestir halda að aðrir en þeir sjálfir séu fordómafullir Það vekur líka athygli að þrátt fyrir að rúmlega níu af hverjum tíu hafi svarað því til að þeir hefðu ekkert á móti því að hafa samkynhneigðan einstakling í sínu liði líti stór hluti aðspurðra svo á að almennt séð væri viðhorf gegn samkynhneigðum neikvætt innan knattspyrnunnar. Þannig virðast margir oftúlka viðhorf annarra og líta svo á að aðrir séu fordómafyllri en þeir sjálfir, þrátt fyrir að það virðist ekki vera raunin.
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira