Teflt til heiðurs Hemma á Grænlandi Jakob Bjarnar skrifar 2. desember 2013 12:57 Vinirnir Hemmi og Hrafn. Hátíð Hróksmanna í Upernavik er tileinkuð minningu Hermanns Gunnarssonar, sem var ástríðufullur skákmaður og átti mikinn þátt í að auka vinsældir skákarinnar á Íslandi.
Hrafn Jökulsson er staddur á Grænlandi á Skákhátíð vináttu Íslands og Grænlands sem haldin í gleymda bænum. Liðsmenn Skákfélagsins Hróksins hafa síðustu daga verið í Upernavik, sem er á 73° breiddargráðu á vesturströnd Grænlands. Íbúar þar eru um 1200, og hefur Upernavik verið kallaður ,,gleymdi bærinn á Grænlandi" því mjög sjaldgæft er að þangað komi gestir, síst í skammdeginu. Hrafn Jökulsson forseti Hróksins segir að ferðin hafi verið hin ævintýralegasta og gengið mjög vel. „Bæjarbúar á öllum aldri hafa tekið okkur fagnandi. Við fengum samkomuhúsið til umráða og á laugardaginn héldum við Vináttuhátíð Íslands og Grænlands. Ótal bæjarbúar á öllum aldri komu og tefldu og glöddust með okkur. Öll börnin fengu gjafir frá íslenskum fyrirtækjum, og mörg sýndu ótrúlega leikni í skákinni eftir lágmarkstilsögn.“Mikið fjör er í kringum skáknám Hróksmanna á Grænlandi.Teflt fyrir Hemma Hátíð Hróksmanna í Upernavik er tileinkuð minningu Hermanns Gunnarssonar, sem var ástríðufullur skákmaður og átti mikinn þátt í að auka vinsældir skákarinnar á Íslandi. „Við Hemmi vorum góðir vinir og tefldum margoft í gegnum árin. Það stóð alltaf til að hann kæmi með okkur til Grænlands, og því þótti okkur við hæfi að tileinka þessa hátíð gleði og vináttu nafni Hemma Gunn.“ Auk hátíða í samkomuhúsi Upernavik hafa Hróksmenn heimsótt félagsheimili fyrir unglinga, athvörf fyrir fólk með geðraskanir og á mánudag liggur leiðin meðal annars í grunnskólann og leikskólann. Á sunnudag nutu leiðangursmenn leiðsagnar Ingibjargar Gísladóttur sem starfar á flugvellinum í Nuuk, og átti frumkvæði að heimsókninni. „Upernavik er lítil eyja, aðeins 8 ferkílómetrar að stærð, en miðstöð fyrir 10 lítil þorp sem eru í grenndinni. Ég hef ferðast vítt og breytt um Grænland, en náttúran og mannlífið hér í Upernavik eru engu lík. Viðmót fólksins, bæði barna og fullorðinna, er líka svo elskulegt og jákvætt að okkur langar helst ekkert að fara strax aftur.“Frá Grænlandi. Vináttubönd þjóðanna efld.Vináttubönd efld Hrafn er í Upernavik ásamt Jósep Gíslasyni, en á sama tíma heldur Róbert Lagerman varaforseti Hróksins uppi skákfjörinu í Nuuk, höfuðborg Grænlands. „Markmið okkar frá upphafi ekki bara verið að kynna þjóðaríþrótt Íslendinga fyrir okkar næstu nágrönnum, heldur ekki síður að efla vináttu og samvinnu þjóðanna á sem flestum sviðum. Grænlendingar horfa mjög til okkar, og vilja aukna samvinnu og samstarf. Við eigum samleið með vinum okkar og nágrönnum í norðrinu.“ Sérlegur verndari hátíðarinnar í Upernavik er Jóhanna Kristjónsdóttir, móðir Hrafns. „Mamma hefur frá upphafi stutt starf okkar meðal grænlenskra barna með ráðum og dáð. Hún hefur líka verið mér óendanlegur innblástur með starfi í þágu barna, jafnt á Íslandi sem í Austurlöndum.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fleiri fréttir Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Sjá meira