Sér ekki fram á gleðilega páska Kristján Hjálmarsson skrifar 25. mars 2013 06:00 Tryggingastofnun ríkisins greiðir ekki út bætur og lífeyri fyrr en annan í páskum. Fréttablaðið/Rósa „
Ég sé ekki fram á að geta haldið páska," segir Sherry Lynn Cormier, tveggja barna einstæð móðir, sem er 70 prósent öryrki. Tryggingastofnun borgar ekki bætur fyrr en 1. apríl, annan í páskum, og því sér Sherry ekki fram á að geta haldið gleðilega páska. „Ég hef það af rétt fram yfir helgi, með einhverjum fimm þúsund kalli, og það eru margir sem ég hef talað við sem eru í sömu stöðu. Launin okkar eru nógu lág fyrir," segir hún. Á heimasíðu Tryggingastofnunar segir að lífeyrir og bætur fyrir apríl verði greiddar út 1. apríl og er vísað í 54. grein laga um almannatryggingar þar sem segir að greiða skuli út bætur fyrir fram fyrsta dag hvers mánaðar. „Vissulega verðum við vör við þessar raddir hjá okkar skjólstæðingum," segir Hildur Björg Hafstein, kynningarfulltrúi hjá Tryggingastofnun. „Ef greitt væri út fyrir páska yrði lengra í næstu mánaðamót og spurning hvaða hjálp væri í því. Flestir launþegar í landinu fá launin sín greidd eftir á. Þeir sem eru með lífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun fá hins vegar mánuðinn fyrir fram. Við greiðum alltaf aðfaranótt fyrsta hvers mánaðar, hvort heldur um frídag er að ræða eða ekki, og þá þegar hafa lífeyrisþegar aðgang að sínum greiðslum í gegnum sinn heimabanka," segir Hildur og segir stofnunina starfa eftir lögum. Tryggingastofnun greiðir út á sjöunda milljarð króna um hver mánaðamót til hátt í sextíu þúsund manns.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fleiri fréttir Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjá meira