Olli stórhættu með lasergeisla Gissur Sigurðsson skrifar 3. apríl 2013 10:53 Flugvöllurinn í Reykjavík.
Með þyrlu Landhelgisgæslunnar og tveimur lögreglubílum tókst að elta uppi og króa af ökumann, sem er grunaður um að hafa beint lasergeisla að flugumferð og flugturninum í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi, en slíkt getur skapað stór hættu. Þyrlan var að koma úr æfingaflugi þegar beiðni barst frá flugturninum um að áhöfn hennar reyndi að finna hvaðan geislinn kæmi. Brátt kom í ljós að geislinn virtist koma úr bíl, sem var niður við sjó í Sjálandshverfi í Garðabæ og vísuðu þyrlumennirnir lögreglunni á hann, en ökumaðurin ók þá af stað og hélt inn í Hafnarfjörð. Þyrlan elti hann og vísaði lögreglu á ferðir bílsins, sem leiddi til þess að hann var stöðvaður á Reykjavíkurveginum. Í honum var 25 ára karlmaður, búsettur úti á landi, sem þegar var handtekinn. En við leit á honum og nákvæma leit í bílnum fannst ekkert lasertæki og hann neitaði staðfastlega sök, þannig að lögregla sleppti honum aftur að yfirheyrslu og leit lokinni. Eftir að hann yfirgaf vettvang í Sjálandshverfi bar ekki meira á ljósaganginum, og lögregla útilokar ekki að hann hafi kastað tækinu út úr bílnum á ferð, enda tækið lítið og handhelt. Þung viðurlög og jafnvel fangelsisdómar geta legið við svona brotum.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Sjá meira