Fiskibátar fengu högg í skjálftanum Gissur Sigurðsson skrifar 4. apríl 2013 12:00 Skjálftinn varð rétt við Grímsey.
Mikið högg kom á nokkra fiskibáta, sem voru að veiðum austan við Grímsey þegar stóri skjálftinn varð þar aðfararnótt þriðjudags og fiskur virðist vera flúinn af svæðinu. Dregið hefur úr skjálftavirkninni í nótt. Að sögn Aðalsteins Júlíussonar á Háey ÞH kom fyrst mikið högg á bátinn og svo titringur stafna á milli, líkast því að hann hefði fengið eitthvað í skrúfuna, eða siglt á eitthvað, sem ekki gat þó verið þar sem báturinn var ekki á siglingu þá stundina. Skipverjar hafi hinsvegar fljótlega áttað sig á hvað gerðist. Línubáturinn Karólína ÞH , sem var enn nær upptökunum, lyftist upp og titraði, þannig að áhöfnin hætti þegar línudrættinum á meðan verið var að ganga úr skugga um hvað hefði gerst, en engan sakaði. Fram að þessu hafði verið all góður afli þar sem menn voru að fá ýsu, þorsk, karfa og jafnvel hlýra, en eftir þetta datt veiðin alveg niður þannig að fiskarnir virðast hafa tekið duglega til sporðanna, og flúið í ofboði af svæðinu. Mikil skjálftavirkni hélt áfram fram á kvöld á báðum upptakasvæðunum austur- og suðaustur af Eynni. Nokkrir skjálftar mældust á bilinu þrjú til fjögur stig. Að sögn jarðvísindamanna, sem fylgjast grannt með framvindunni, fór að draga úr virkninni upp úr miðnætti og núna undir hádegi var orðið nokkuð rólelgt á svæðinu, þótt of snemmt væri að spá um endalok hrinunnar.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Sjá meira