Sprautufíkill dæmdur: „Viljið þið fá einhvern kokkteil í ykkur frá okkur“ 4. apríl 2013 13:34 Átökin áttu sér stað í húsakynnum Hjálpræðishersins.
Tuttugu og þriggja ára gömul kona var dæmd í fimmtán mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir þjófnað, umferðalagabrot og brot gegn valdstjórn. Konan, sem er sprautufíkill, fór ásamt öðrum manni inn í forstofu Hjálpræðishersins í byrjun janúar. Þar hreiðruðu þau um sig og ætluðu að gista þar næturlangt. Húsvörðurinn ræddi við þau og sá þá strax að þau voru undir áhrifum vímuefna. Karlmaðurinn var ógnandi í framkomu sem varð til þess að húsvörðurinn hringdi á lögregluna. Þegar lögreglan kom á vettvang var parið mjög æst. Konan sagði þá við lögreglumennina: „Viljið þið að ég stingi ykkur með nál." Konan dró upp blóðuga sprautunál og bætti við: „Viljið þið fá einhvern kokkteil í ykkur frá okkur". Einn lögreglumannanna sagði fyrir dómi að sér hafi ekki staðið á sama, enda virtust þau óútreiknanleg. Maðurinn tók upp sprautunálar úr vasa sínum og sagði lögreglunni að þau væru sprautufíklar. Lögreglan yfirbugaði svo parið eftir að liðsauki kom á svæðið. Parið sýndi mikinn mótþróa. Konan hefur fjórum sinnum verið dæmd fyrir hegningarlagabrot síðan árið 2010. Með þessu broti rauf hún skilorð og er dómurinn því óskilorðsbundinn.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Sjá meira