Ánægður með afgreiðslu náttúrufrumvarps 31. mars 2013 18:41
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að það hafi verið mikill sigur að Alþingi hafi náð afgreiða frumvarp um náttúruvernd fyrir þinglok. Gildistöku laganna var þó frestað um þrjá mánuði til að mæta gagnrýni þingmanna sjálfstæðis- og framsóknarflokks sem sátu hjá í atkvæðagreiðslu um málið. Markmið frumvarpsins var að endurbæta lagaumhverfi um náttúrvernd á Íslandi meðal annars það sem snýr að vernd og nýtingu auðlinda og umgengni. Frumvarpið var umdeilt. Um sextíu umsagnir bárust umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem hafði frumvarpið til umfjöllunar og rúmlega sextán þúsund skráðu nafn sitt á undirskriftalista þar sem frumvarpinu var mótmælt. Nokkrar breytingar voru gerðar á frumvarpinu til að mæta þessari gagnrýni og var það síðan samþykkt á Alþingi - rétt fyrir þinglok. Framsóknar og sjálfstæðismenn sátu hjá í atkvæðagreiðslunni. Gildistöku laganna var frestað um þrjá mánuði og eiga lögin að taka gildi 1. apríl á næsta ári. „Það var í raun og veru mikill sigur, mikill árangur að ná þessu frumvarpi í gegn," segir Mörður, og bætir því við að ekki skipti öllu máli hvort það taki gildi um næstu mánaðarmót eða síðar. „Það tekur tíma að undirbúa gildistöku svona frumvarps og það á eftir að standa í tíu til tuttugu ár." Mörður óttast ekki að sjálfstæðis- eða framsóknarmenn muni einfaldlega breyta lögunum ef þeir komast í ríkisstjórn eftir kosningar. „Þeir vildu láta fresta þessu og fengu fram þriggja mánaða frestun. Það er þá þeirra verkefni í kosningabaráttunni að segja okkur hvers vegna það er og hverju þeir vilja láta breyta ef þeir vilja láta breyta einhverju, en efnisrök þeirra hef ég eiginlega ekki heyrt."
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira