Nemi fór í mál við FH og Saga film - þarf að borga 700 þúsund 20. mars 2013 18:08 Frá knattspyrnuleik í Kaplakrika í Hafnarfirði. Mynd/úr safni
Fimleikafélag Hafnarfjarðar og Saga Film voru sýknuð í Héraðdómi Reykjaness í dag af kröfum manns sem slasaðist í á knattspyrnuleik í Kaplakrika árið 2007. Maðurinn kveður málavexti vera þá að hann hafi slasast á heimavelli FH, Kaplakrika, þar sem hann var staddur sem áhorfandi á knattspyrnuleik. Fyrir dómi sagði hann að margmenni hafi verið á vellinum og erfitt hafi verið að fá stæði. Leikurinn hafi farið fram í beinni útsendingu og hafi tökulið á vegum Saga film verið með tæki og tól á staðnum. Meðal þeirra tækja hafi verið sérstakur útsendingarvagn, sem komið hafi verið fyrir á vellinum við áhorfendastúkuna. Þegar hann var á leiðinni af fellinum hafi mikil þvaga myndast við útsendingarvagninn, sem hafi hindrað eðlilega för um svæðið. Hann hafi því ákveðið að víkja til hliðar og stigið upp í tröppur sem lágu upp í útsendingarvagninn, til þess að komast framhjá margmergðinni. Í sama bili hafi hurð á bílnum skyndilega opnast með þeim afleiðingum að maðurinn kastaðist aftur fyrir sig og niður á malbikið fyrir neðan. Fallið hafi verið töluvert. Maðurinn segir að engar aðvaranir hafi verið á bílnum. Við skoðun hjá lækni var hann greindur með brot á 4. brjósthryggjarlið, talsverða verki í brjósthryga og stífa og auma vöðva þar í kring. Mat bæklunarskurðlæknis er að þessir áverkar hái honum í daglegu starfi. Þá kom einnig fram í bréfi læknisins að hann hafi flosnað upp úr smíðanámi og þurft að hætta vinnu sinni sem smiður. Einkennin hafi valdið honum margra mánaða óvinnufærni. Maðurinn fór fram á tæplega 3,5 milljónir í miskabætur vegna slyssins. Dómari féllst ekki á kröfur mannsins og sýknaði FH og Sagafilm meðal annars á þeirri niðurstöðu að ekki séu næg efni til að líta svo á að slys mannsins megi rekja til gáleysis FH og Sagafilm, né starfsmanna þess. Slysið hafi verið óhappatilviljun eða óvarkárni mannsins. Manninum var gert að greiða 700 þúsund í málskostnað.Dóminn má lesa hér.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Sjá meira