Dæmd til að greiða Arion banka 5 milljónir vegna húsaleigu Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. mars 2013 17:03
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness um að Helgu Daníelsdóttur ber að greiða Arion banka og sjóði á vegum Stefnis, dótturfélags Arion banka, fimm og hálfa milljón vegna vangoldinnar leigu á íbúðahúsnæði á tímabilinu 2. desember 2009 til 6. apríl 2011. Helga bjó, ásamt Sævari Jónssyni eiginmanni sínum, í Súlunesi í Garðabæ. Upphaflega áttu þau húsið en seldu það svo eignarhaldsfélagi Sævars. Húsið er svo selt nauðungarsölu eftir að eignarhaldsfélag Sævars eignast það. Hjónin bjuggu hins vegar áfram í húsinu, en fram kom fyrir Héraðsdómi Reykjaness að lögmaður Sævars hefði óskað eftir því við lögmann Arion banka að þau fengu að búa þar áfram. Helga bar aftur á móti fyrir dómi að hún hafi verið í þeirri trú að hún mætti búa endurgjaldslaust í húsnæðinu samkvæmt viðauka við kaupsamning á milli sín, Sævars og eignarhaldsfélags hans. Þá kvaðst hún aldrei hafa verið krafin um leigugreiðslur og samningaumleitanir Sævars við lögmenn stefnanda hafi verið án hennar vitundar. Í niðurstöðu sinni vísar Hæstiréttur til 69. gr. hjúskaparlaga þar sem segir að hvoru hjóna sé meðan sambúð varir heimilt að gera samning gagnvart þriðja aðila sem teljast venjulegir vegna sameiginlegs heimilishalds. Er sérstaklega tekið fram að þetta gildi einnig um leigu húsnæðis sem ætlað er til sameiginlegs heimilis hjónanna. Teljast slíkir samningar venjulegast gerðir á ábyrgð beggja hjóna. Þá vísar dómurinn til þess að Helga og fjölskylda hennar bjuggu í húsinu, sem er að Súlunesi 16, þann tíma sem deilt er um. Það skipti því engu máli sú viðbára hennar að hún hafi verið grandlaus um samskipti eiginmanns síns við Arion banka og ekki komið að samningum um afnot af fasteigninni.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Sjá meira