Innlent

Eftirlýstur maður tekinn fyrir fíkniefnaakstur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Karlmaður á þrítugsaldri var stöðvaður í Keflavík vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Hann bar þess greinileg merki og var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Sýnatökur staðfestu sýnatökur að hann hefði neytt kannabisefna, amfetamíns og kókaíns.

Þegar nánar var að gáð kom í ljós að maðurinn var eftirlýstur vegna afplánunar annarra brota og var hann því vistaður i fangaklefa að sýnatöku lokinni. Lögreglan á Suðurnesjum segir að umræddur maður hafi iðulega komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnabrota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×