Aukinn skrifstofukostnaður Reykjavíkurmaraþoni um að kenna 24. mars 2013 20:29
Ársskýrsla Íþróttabandalags Reykjavíkur var kynnt á þingi bandalagsins um helgina. Í henni kemur fram að útgjöld við rekstur skrifstofu ÍBR nam rúmlega níutíu milljónum í fyrra og hefur kostnaðurinn hækkað mjög frá hruni. Var þetta gagnrýnt á þinginu. Reyndar er kostnaðurinn skráður 41,7 milljónir. En þegar reksturinn er sundurliðaður sést að tekjufærðir stykir nema 47,5 milljónum sem lækka rekstrarkostnaðinn úr 90 milljónum í 41,7milljónir Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR, segir aukinn rekstrakostnað helgast af því að bandalagið tók að sér rekstur Reykjavíkurmaraþonsins árið 2003. "Sá rekstur hefur verið rekinn og er rekinn á sérstakri kennitölu og sérstakur ársreikningur hefur verið um hann og sérstök stjórn samþykkir hann. En það eru ákveðin samlegðar áhrif sem eiga sér stað á skrifstofu íþróttabandalagsins við þennan viðburð sem Reykjavíkurmaraþonið er og reyndar Laugarvegshlaupið og Jónsmessuhlaupið sem er inn í þessu líka." Sá kostnaður hafi þó ekki verið settur fram fyrr í reikningum íþróttabandalagsins þar sem hlaupin eru rekin á annarri kennitölu og sér ársreikningur sé um þau. "Nú er kostnaður við rekstur Reykjavíkurmaraþonsins sýndur inn í þessari rekstratölu líka," segir Ingvar. Frá því ÍBR tók við hlaupinu hefur áhugi og þátttaka í því aukist mjög og hlaupum fjölgað. "Gagnrýnin fjallar um það hvernig kostnaðurinn er settur fram en með fjölmennari hlaupum hefur auðvitað rekstrarkostnaðurinn aukist um leið og við þurfum fleiri starfsmenn til að reka hlaupið með svona mörgum þátttakendum." Þá hefur verið gagnrýnt að ÍBR átti 128 milljónir í handbæru fé í sjóði en nú nemur það 47 milljónum þar sem ákveðið var að nota féð í endurbætur á húsnæði fremur en að veita því til íþróttabandalagana. Ingvar segir félagið hafa fengið féð lánað hjá sjálfu sér til að bæta aðstöðu fatlaðra og uppfylla kröfur um öryggi gegn jarðskjálftum. En á sama tíma og rekstrakostnaður vegna skrifstofufólks og steinsteypu eykst hafa styrkir til afreksfólks frá ÍBR dregist mjög saman og námu í fyrra aðeins um þremur milljónum, er forgangsröðunin rétt? "Jú, styrkir til afreksfólks hafa dregist saman, því miður, vegna þess að það var afrekssjóður rekinn hér fyrir hrun af ÍBR samvinnu við SPRON og við vitum hvernig það fór. Við vorum svo með framlag frá Reykjavíkurborg sem lagðist alveg af." Segir Ingvar að unnið hafi verið að því að bæta stöðuna, það sé til dæmis hægt með því að reka viðburði eins og Reykjavíkurmaraþon sem gefa kost á því að auka fé í afrekssjóði. "Um leið er Reykjavíkurmaraþon að stækka og þá erum við að greiða meira til félagana sem standa í sjálfboðavinnu með okkur til að halda utan um það."
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Sjá meira