Íslenskur hestur limlestur í Skotlandi Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. mars 2013 14:22 Hesturinn sem um ræðir heitir Hrafn.
Íslenskur hestur fannst illa limlestur á hestabúgarði í Edinborg á dögunum. Hesturinn, sem er 23ja ára gamall geldingur, og gegndi kallinu Hrafn fannst blóðugur á Swanston búgarðinum á fimmtudag. Limur hans hafði verið skorinn af og hékk hann á þvagrásinni einni saman. Limurinn var svo fjarlægður með neyðarskurðaðgerð. „Dýralæknirinn ráðlagði að aðgerðin yrði gerð með beittu áhaldi," sagði John Toule, SPCA í Skotlandi. SPCA er samtök dýraverndunarsinna. Toule segir að allt bendi til þess að um grófa árás hafi verið að ræða. Eigandi Hrafns kom að honum á fimmtudaginn. Hún hafði áður séð hann á miðvikudaginn og því er talið að hestinum hafi verið misþyrmt seinnipart miðvikudags eða á fimmtudagsmorgni. Toule segir að hesturinn hafi misst mikið blóð og þó að hann væri enn á fótum væri hann mjög veiklaður. „Það er erfitt að skilja hvernig nokkur maður getur gert svona lagað við varnarlaust dýr og þessi árás vekur virkilega hjá manni áhyggjur," bætti hann við. „Að valda svona dýri óþarfa þjáningu er glæpur og hver sem verður fundinn sekur um slíkt getur búist við því að honum verið bannað að eiga dýr í langan tíma," sagði hann enn fremur. Eigandi Hrafns vildi ekki koma fram undir nafni en hann sagði við BBC að þessi verknaður væri til marks um heigulshátt og grimmd. Hann sagði að Hrafn væri í áfalli. „Hann er svo ljúfur og góður eldri hestur að það er erfitt að ímynda sér hvernig nokkur maður getur kvalið dýr með þessum hætti," segir eigandinn.Nánar er fjallað um málið á vef BBC.
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Fleiri fréttir Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Sjá meira