Typpin fjarlægð af Laugavegi 28. mars 2013 16:00 "Arkitektatyppin“ á myndinni heyra nú sögunni til.
Margir sem nú eiga leið um Laugaveginn taka kannski eftir því að hann virkar rýmri en áður. Ástæðan er sú að búið er að fjarlægja alla polla sem voru innan við fjóra metra frá húsvegg og einnig þá sem þóttu þrengja að gangandi og akandi vegfarendum. Útkoman er breiðari gangstétt og gata vegfarendum til hægðarauka. Frá þessu er greint á vef Reykjavíkurborgar. Rifjuð er upp að tilgangur pollanna hafi verið að koma í veg fyrir að ökumenn legðu á gangstéttum. Ásýnd götunnar hafi lengi liðið fyrir of marga polla. Starfsmenn Bílastæðasjóðs munu fylgjast vandlega með Laugaveginum í kjölfarið og eru ökumenn hvattir til að virða mörkin á milli gangstéttar og götunnar. Laugavegurinn verður í sumar fegraður enn frekar í sumar og má búast við að í stað pollanna verði komið fyrir blómakerjum, bekkjum og stólum sem bæta aðstöðuna fyrir gesti og gangandi. Sumarið 2012 fjölluðu þrjár ungar sjónskertar konur um aðgengismál í miðborginni í skýrslu fyrir Blindrafélagið. Í skýrslunni kemur fram að ósætti er með „arkitektatyppin" eins og þær kalla pollana en þeir hafa verið sjónskertum talsverð hindrun. Borgin kemur nú til móts við ábendingar þeirra en sömuleiðis verða hljóðmerki við gönguljós bætt á þessu ári og stefnt er að því að skapa enn meira rými fyrir fólk með sumargötum.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Innlent Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Innlent Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Erlent Fleiri fréttir Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Sjá meira