Jóhannes Gunnarsson: Ámælisvert að farfuglar fái óáreittir að fljúga til landsins 14. mars 2013 10:02 Jóhannes Gunnarsson.
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir í pistli á heimasíðu samtakanna að bréf Eftirlitsstofnunar EFTA til íslenskra stjórnvalda um að bann á innflutningi á hráu og ófrosnu kjöti standist ekki reglur, ekki koma sér á óvart. Íslensk stjórnvöld hafa mótmælt þessum og sent rökstuðning til ESA þar sem sjónarmiðum þeirra er haldið til haga. Jóhannes skrifar: „Ekki er fjallað um hættuna af hráu kjöti í þessum rökstuðningi. Það verður því að segjast eins og er að þessi rökstuðningur virkar ekki mjög sannfærandi á undirritaðan frekar en þá sem fara með þetta mál hjá ESA." Jóhannes bætir svo við: „Fyrir um 5 árum síðan stóð til að heimila innflutning á hráu kjöti með samþykkt nýrra matvælalaga. Þáverandi yfirdýralæknir, Halldór Runólfsson, sagði þá í fjölmiðlum að þeir dýrasjúkdómar sem borist hefðu til landsins á síðustu árum hefðu borist með fólki en ekki með matvælum eða dýrum. Halldór sagði einnig að aðrar þjóðir væru ekki síður hræddar við að sjúkdómar gætu borist milli svæða og landa með matvælum og því hafi ESB samþykkt umfangsmikla löggjöf og eftirlitskerfi til að koma í veg fyrir slíkt." Jóhannes segir raunar að miðað við ummæli fyrrverandi dýralæknis væri nær lagi að allir þeir einstaklingar sem til landsins koma væru settir í sóttkví þar sem þeir gætu borið með sér salmónellu- og saurgerlastofna sem aldrei hafa fundist hér. „Á sama hátt hlýtur það að vera mjög ámælisvert að farfuglar fái óáreittir að koma til landsins. Ef hættan er svo mikil af hráu kjöti að loka verði landinu fyrir innflutningi á slíku kjöti þá skulum við ganga alla leið og fyrirbyggja smit sem getur borist í bústofn landsmanna á mun auðveldari hátt en með hráu kjöti," skrifar Jóhannes svo. Grein Jóhannesar í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira