Menning

Fjölmennt á stærstu myndlistarsýningu Íslands

Ellý Ármanns skrifar
Myndir/Kristinn Svanur Jónsson.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær á Kjarvalsstöðum á stærstu myndlistarsýningu sem haldin hefur verið hér á landi. Sýningin, sem ber heitið Flæði, var sett upp í tilefni af 40 ára afmælisári Kjarvalsstaða en markmiðið er að draga allan almennan safnkost safnsins fram úr geymslunum og sýna hann.

Sýningin sem hengd er upp í anda salon-sýninga, þar sem listaverkin þekja sýningarveggina frá gólfi til lofts, tekur stöðugum breytingum þá tæpu fjóra mánuði sem hún stendur yfir, jafnvel meðan gestir eru viðstaddir. Það má því búast við að allt að þúsund verk verði dregin fram í dagsljósið á þessari óvenjulegu og síbreytilegu sýningu.

Samhliða sýningunni verður safneignin ljósmynduð, skráning hennar yfirfarin og aðbúnaður og ástand á verkunum metið. Áhorfendur geta því fylgst með starfinu og virt fyrir sér þau fjölbreyttu verk sem eru í eigu Listasafns Reykjavíkur.

Birgir Ísleifur Gunnarsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, opnaði sýninguna en hann opnaði Kjarvalsstaði þann 24. mars 1973.

Sjá upplýsingar um sýninguna hér - Listasafnreykjavikur.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×