Skroll-Lífið

Fréttamynd

Árshátíð Sporthússins

Á annað hundruð starfsmenn Sporthússins og makar komu saman á tuttugustu hæðinni í Turninum í Kópavogi um helgina þegar árshátíð fyrirtækisins var haldin.

Lífið
Fréttamynd

Lúðrasveit og grillaðar pulsur - getur ekki klikkað

Björt framtíð kynnti kosningaáherslur sínar og opnaði kosningamiðstöð á Hverfisgötu 98 í góða veðrinu á sunnudag. Fullt var út úr dyrum, boðið var upp á grillaðar pylsur og Lúðrasveit verkalýðsins mætti á svæðið og tók nokkur lög við mikinn fögnuð viðstaddra — og þá sérstaklega barnanna sem sýndu túbunni mikinn áhuga.

Lífið
Fréttamynd

Hver sagði að kosningabaráttan væri óspennandi?

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Sjálfstæðisflokkurinn opnaði kosningaskrifstofur um alla Reykjavíkurborg síðustu helgi. Eins og sjá má var margt var um manninn og er óhætt að segja að gleði og samstaða ríki innan hópsins.

Lífið
Fréttamynd

Frægir á frumsýningu

Fjölmargir þekktir einstaklingar mættu á frumsýningu Ladda í Hörpu á föstudaginn var. Eins og sjá má á myndunum voru gestir kátir.

Lífið
Fréttamynd

Dásamlegt dömuboð í Bankastræti

Í tilefni af því að GuSt, Gammur og Búðin sameinuðust í eina verslun að Bankastræti 11 héldu var haldið dásamlegt dömuboð í tilefni sameiningarinnar.

Lífið
Fréttamynd

Vel heppnuð Páskagleði

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi á vel heppnuðum tónleikum sem báru yfirskriftina Páskagleði. Þar komu fram listamenn sem allir eiga það sameiginlegt að spila tónlist sem einkennist af gleði og það á heldur betur við um páskana.

Lífið
Fréttamynd

Fanta flott á frumsýningu

Meðfylgjandi myndir voru teknar á miðvikudagskvöldið þegar Sambíóin frumsýndu nýjustu bíómynd leikstjórans Ágústs Guðmundssonar Ófeigur gengur aftur. Þessi rómantíska gamanmynd er páskamynd Sambíóanna í ár og verður frumsýnd í Sambíóunum um allt land.

Lífið
Fréttamynd

Vorinu fagnað á Austur

Vorkomu var fagnað á skemmtistaðnum Austur í gærkvöldi. Um var að ræða pásakapartí og eins og sjá má á myndunum sem Sigurjón Ragnar ljósmyndari tók mætti fjöldi manns. Meðal annars var boðið upp á nýja drykki frá Schweppes, Bitter Lemon og Ginger Ale, sem hafa ekki verið fáanlegir hér á Íslandi lengi.

Lífið
Fréttamynd

Flottar konur kynna sér nýtt brúnkukrem

St.Tropez var með glæsilega kynningu á húð- og brúnku vörum á veitingahúsinu Nauthóll. Til landsins kom sérstakur sérfræðingur hjá St.Tropez, Jules Heptonstall, til að kynna vörurnar og sýna hvernig þær eru notaðar.

Lífið
Fréttamynd

Sirrý fagnar með flottu fólki

Sigríður Arnardóttir, sem við þekkjum betur sem Sirrý, hefur áralanga reynslu af því að koma fram í fjölmiðlum og kenna fólki bætt samskipti. Meðfylgjandi myndir tók Sigurjón Ragnar í útgáfuhófinu hennar í síðustu viku þegar hún fagnaði ásamt vinum útgáfu bókarinnar Örugg tjáning. Þar gefur Sirrý góð ráð og miðlar aðferðum sem hafa dugað henni vel og þátttakendum í námskeiðum hennar.

Lífið
Fréttamynd

Efla virðingu og skilning gagnvart venjum annarra

Meðfylgjandi myndir tók Villhelm Gunnarsson ljósmyndari á Leikskólanum Bjartahlíð í Reykjavík sem er hluti af svokölluðu Comineusarverkerfni í samstarfi við leikskóla í Lettlandi, Spáni og Tyrklandi.

Lífið
Fréttamynd

Jón Gnarr fór á kostum eins og vanalega

Fjölmenni fagnaði 40 ára afmæli á Kjarvalsstöðum í gær. Borgarstjóri mætti uppáklæddur til heiðurs Jóhannesi S. Kjarval og flutti skemmtilegt ávarp. Margt var í boði í húsinu allan daginn og greinilegt að gestir skemmtu sér vel.

Lífið
Fréttamynd

Þjóðþekktir Íslendingar létu sjá sig

Fyrsti þátturinn af Ljósmyndakeppni Íslands 2013 var forsýndur í gærkvöldi. Af því tilefni var haldið partí á veitingahúsinu Kex. Þættirnir hefja göngu sína 28. mars næstkomandi á Skjánum. Eins og sjá má á myndunum mættu þjóðþekktir Íslendingir á forsýninguna eins og Andri Freyr Viðarsson sjónvarpsmaðurinn vinsæli, Jón Kaldal fyrrum ritstjóri, Tobba Marínósdóttir rithöfundur og kærasti hennar Karl Sigurðsson svo einhverjir séu nefndir.

Lífið
Fréttamynd

Hlýleg stemning

Útgáfu bókarinnar Hlýir fætur var fagnað í Eymundsson, Skólavörðustíg í gær en höfundar hennar eru Ágústa Þóra Jónsdóttir og Benný Ósk Harðardóttir.

Lífið
Fréttamynd

Vigdís Finnbogadóttir meðal gesta

Vigdís Finnbogadóttir var meðal ánægðra gesta sem fjölmenntu á opnun sýningar Þórhildar Jónsdóttur í Eiðisskeri, sýningarsal Seltirninga á Eiðistorgi í gær, fimmtudag.

Lífið
Fréttamynd

Sumir hafa ekkert breyst

Vefsíðan www.Geiri.net heldur áfram að birta gamlar myndir af þekktum Íslendingum skemmta sér fyrir þó nokkuð mörgum árum. Ný rannsókn sýnir að það getur komið fólki í betra skap að skoða gamlar myndir af sér á Facebook. Rannsóknin var framkvæmd í háskólanum í Portsmouth á dögunum eins og sjá má hér. Ef myndaalbúmið er skoðað má sjá að sumir hafa ekkert breyst.

Lífið
Fréttamynd

Fagna útkomu hvatningarrits

Meðfylgjandi myndir voru teknar í útgáfuboði Sigríðar Snævarr og Maríu Björk Óskarsdóttur í Eymundsson í Austurstræti í gær þegar þær fögnuðu útkomu hvatningarritsins Nýttu kraftinn. Í bókinni er atvinnulausu fólki bent á fjölmargar leiðir við atvinnuleit og farið ítarlega í ráðningarferli, meðal annars með sjálfskoðun, styrkleikaæfingum, gerð ferilskrár og kynningarbréfa, sem og æfingum og ábendingum fyrir atvinnuviðtöl.

Lífið
Fréttamynd

Þessi er að gera góða hluti

Rut Sigurðardóttir ljósmyndari sem býr og starfar í Berlín í Þýskalandi myndaði íslenskan myndaþátt fyrir þýska tímaritið Kaltblut Magazine. Myndaþátt Rutar sem ber heitið Saga úr sjó má skoða hér.

Lífið
Fréttamynd

Heiðar svoleiðis dekraði við dömurnar

Heiðar Jónsson, sem er menntaður förðunarfræðnigur og Image designer kennari frá First impressions í Bretlandi ásamt því að hafa diplómagráðu í litafræðum frá L'Oréal Paris fór á kostum á konukvöldinu í Smáralind.

Lífið
Fréttamynd

Flottir gestir á ferð

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Rhodium-teiti fyrir helgi í Kringlunni sem haldið var í tilefni af Hönnunarmars. Íslenskir skratgripahönnuðir sýndu þar hönnun sína. Gestir voru kátir eins og sjá má á myndunum.

Lífið
Fréttamynd

Æfa pósur fyrir Íslandsmótið

Meðfylgjandi myndir voru teknar af fitness- og módelfitness keppendum æfa keppnisstellingar eða öllu heldur pósur fyrir Íslandsmót IFBB sem haldið verður í Háskólabíó 28. og 29. mars næstkomandi. Um er að ræða pósunámskeið á vegum Ifitness.is sem haldið er tvisvar sinnum á ári fyrir keppendur í vaxtarrækt, fitness og módelfitness. Forsala Íslandsmótsins fer fram í Hreysti.

Lífið
Fréttamynd

Sýning JÖR á allra vörum

Sýning JÖR by GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON var á allra vörum eftir gærdaginn á Reykjavík Fashion Festival sem fram fór í Hörpu og stóð að mati margra upp úr á RFF þetta árið. Línan var bæði fyrir dömur og herra, þar sem dragtir og jakkaföt spiluðu mjög stórt hlutverk hjá báðum kynjum. Guðmundur notar nútímaleg mynstur á klassík snið og tekst þannig að færa þann gamaldags sjarma sem hann er þekktur fyrir í nýjan búning. Innblásturinn var greinilega úr öllum áttum. Förðunin var í anda kvikmyndarinnar Clockwork Orange og sumar fyrirsæturnar voru með klúta fyrir andlitinu eins og bófar. Fallegt og frumlegt hjá JÖR

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Féllu vel í kramið hjá erlendu blaðamönnunum

Sýning Farmers Market á Reykjavík Fashion Festival sem fram fór í Hörpu í gær var mikið sjónarspil. Fyrirsæturnar gengu sýningarpallana við lifandi tónlist og fylgihlutirnir voru allt frá skíðastöfum til reiðtygja. Eins og áður á sýningum hjá Farmers Market bar stíliseringin af þar sem ull og loð var í brennipunkti. Fötunum var blandað saman á virkilega fallegan hátt og hinir ýmsu fylgihlutir spiluðu stórt hlutverk. Nýjungarnar hefðu þó mátt vera fleiri, en margar af flíkunum á sýningunni höfum við séð áður. Línan var einstaklega íslensk og féll vel í kramið hjá erlendu blaðamönnunum.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

REY kom lítið á óvart - sjáðu myndirnar

Rebekka Jónsdóttir, sem hannar undir nafninu REY, tók þátt í RFF í þriðja skipti í ár. Rebekka leggur fyrst og fremst áherslu á einfaldleika og gæði í flíkum sínum. Línan sem hún sýndi í gær var einmitt þetta, einföld en falleg og laus við allar áhættur. Svartir og dökkbláir litir voru í aðalhlutverki, línan var stílhrein og nútímaleg en kom lítið á óvart.

Tíska og hönnun