Telja skógrækt við Þórsmörk í hættu 8. apríl 2013 07:00 Almenningar „
Ég er mjög ósáttur með úrskurð nefndarinnar sem kaus að hunsa fyrirliggjandi beitarþolsmat sem unnið var af Landbúnaðarháskólanum. Þar kemur skýrt fram að það sé ekki ákjósanlegt að hefja beit á svæðinu,“ segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri. Ítöluefnd, sem skipuð var af sýslumanninum á Hvolsvelli fyrir áramót, úrskurðaði nýlega að bændur fengju heimild til þess að beita fé í Almenningum í Rangárþingi eystra. Leyfi var gefið fyrir upprekstrarrétti 50 tvílembdra áa (alls 150 dýr) og eftir fáein ár 130 tvílembdra áa (alls 390 dýr). Svæðið sem um ræðir hefur verið friðað og í uppgræðslu frá 1990. Samkvæmt lögum skal ítölunefnd byggja niðurstöðu sína á beitarþolsmati. Fyrirliggjandi beitarþolsmat var hins vegar ekki nýtt, að sögn Sveins.Hann vill þó ekki tjá sig um málið þar sem landgræðslan hafi kært málið. Í Almenningum hefur farið fram viðamikil uppgræðsla á birkiskógi en skógurinn hefur breiðst út um 180 hektara eftir friðunina. Þar er hins vegar mikið um nýgræðlinga sem fulltrúar Landgræðslunnar og Skógræktar ríkisins óttast að þoli ekki ágang sauðfjárbeitar. Hreinn Óskarson, skógarvörður hjá Skógrækt ríkisins og sauðfjárbóndi, segir að með því að leyfa beit á svæðinu sé verið að taka mikla áhættu. Slíkt geti jafnvel haft áhrif á loftgæði í höfuðborginni þar sem gróðurlendi á svæðinu hindrar öskufok. „Þetta er heilbrigðismál fyrir fólk líka,“ segir Hreinn og bætir við, að um sé að ræða beit á lítt grónu landi þar sem hagsmunir snúast ekki um skort á beitilandi í byggð. „Þetta snýst um að reka fé eingöngu til að tryggja afréttareign og með því skaða hugsanlega áratuga langa gróðurframvindu. Það er algjörlega ótækt. Við segjum Almenninga óbeitarhæfa út frá sjónarmiði uppgræðslu. Niðurstaða ítölunefndar tekur hins vegar mið af því hvort landið sé beitarhæft fyrir fé og hvort dýrin geti lifað þar af. Hér takast því á tvö mjög ólík sjónarmið.“ Almenningar liggja að Þórsmörk og segir Hreinn að vegna þess þurfi að reisa girðingar til að hindra að fé renni á milli svæðanna. Kostnaður skattgreiðenda við slíkt verði um tíu milljónir og smalakostnaður og viðhald geti numið um tveimur milljónum árlega þar sem girðingarstæði við Þórsmörk sé með því erfiðara sem þekkist. „Þetta er ekki beint hagkvæm leið til lambakjötsframleiðslu og augljóst er að þarna er verið að fórna hagsmunum almennings og náttúrunnar fyrir sérhagsmuni nokkurra bænda.“
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Sjá meira