Formanni Rafiðnaðarsambandsins vísað á dyr í Nóatúni Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 20. mars 2013 13:36 Kristján segir það sérkennilegt að ekki sé heimilað að skoða verð í verslunum og reyna að upplýsa almenning um þróun verðlags. „
Við hjá Rafiðnaðarsambandinu vorum að aðstoða ASÍ í verðlagseftirlitinu og ég var staddur í Nóatúni ásamt öðrum að skrá niður vöruverð þegar starfsmaður kemur að mér og tilkynnir mér að ég megi það ekki og biður mig að fara út," segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Starfsmönnum Verðlagseftirlits ASÍ hefur ítrekað verið vísað frá verslunum að undanförnu, og verslanirnar Nóatún, Hagkaup, Kostur og Víðir vilja takmarka aðgengi neytenda að upplýsingum um vöruverð sitt, en svo segir í tilkynningu frá ASÍ frá 6. mars. „Ég óskaði eftir að fá samband við verslunarstjóra en hann var ekki við á þessum tíma. Ég varð því við ósk starfsmannsins og yfirgaf búðina." Kristján segir starfsmanninn hafa tekið það fram að þeim væri óheimilt að nýta þær upplýsingar sem þeir hefðu skráð hjá sér, en hann segist ekki vita hvort starfsmaðurinn hafi heimild til þess að banna þeim það. „Það er svo sem spurning hversu langt þeir geta farið með það, en við ákváðum að láta ekkert á það reyna. Þetta var starfsmaður á gólfi sem fylgir bara skipunum að ofan. Hann sagði okkur að þetta væri skipun frá Kaupási, sem er eigandi Nóatúns, um að starfsmenn ASÍ mættu ekki gera verðkannanir í verslunum Kaupáss." Kristján segir það sérkennilegt að ekki sé heimilað að skoða verð í verslunum og reyna að upplýsa almenning um þróun verðlags. „Nú er þetta einmitt sá þáttur sem hefur hvað mest áhrif á verðbólgu og þar af leiðandi á skuldir heimilanna. Það er því ekkert óeðlilegt að fólk vilji fylgjast með því." En telur Kristján verslanirnar hafa eitthvað að fela? „Það er það sem maður veltir eðlilega fyrir sér. Hvað er það sem þeir vilja ekki sýna?"
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Sjá meira