Hóta að þvinga fram atkvæðagreiðslu Heimir Már Pétursson skrifar 21. mars 2013 18:39
Allt bendir til að til úrslita dragi í þrátefli stjórnarflokkanna og Framsóknarflokkks og Sjálfstæðisflokks í stjórnarskrármálinu á næstu tveimur sólarhringum. Ef ekki tekst að afgreiða einhver ákvæði nýrrar stjórnarskrár eru líkur á að stjórnarþingmenn taki sig saman og þvingi fram atkvæðagreiðslu sem ekki hefur gerst frá árinu 1949. Forsætisráðherra lagði fram í dag þingsályktun um frestun þingfundar á morgun eða síðar, en framlagning slíkrar ályktunar þýðir yfirleitt að það styttist í þinglok. Alþingi samþykkti í morgun tvenn ný lög, annars vegar um breytingar á gjaldeyrislögum og hins vegar um sameiningu rannsóknarnefnda samgönguslysa og kom níu málum til þriðju umræðu. Eftir það hélt önnur umræða um stjórnarskrárfrumvarp formanna stjórnarflokkanna á Bjartrar framtíðar áfram þriðja umræðudaginn í röð, meira og minna fyrir tómum þingsal. Á bakvið tjöldin reyna leiðtogar stjórnmálaflokkanna að ná samkomulagi um afgreiðslu stjórnarskrármálsins og um leið þinglok, en öllum er að verða ljóst að höggva verður á þennan hnút með einhverjum hætti. Í raun koma bara tvær leiðir til greina. Að ríkisstjórnin gefi allar breytingar á stjórnarskránni upp á bátinn og fái í staðinn afgreidd frumvörp um náttúruvernd, stuðningsaðgerðir vegna kísilvers á Bakka og byggingu nýs spítala og nokkur önnur mál, eða látið verður sverfa til stáls. Forseti Alþingis eða níu þingmenn geta tekið sig saman um að beita 71. grein þingskaparlaga um að takmarka umræðutíma um tiltekið mál þannig að það komist til atkvæða. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar eru þreyfingar milli þingmanna um að beita þessu ákvæði. Það hefur ekki verið gert síðan 30. mars árið 1949, þegar þvinguð var fram atkvæðagreiðsla um aðild Íslands að NATO sem leiddi síðan til óeirða á Austurvelli. Ef þessi leið verður farin yrði það að líkindum strax á morgun eða á laugardag. Hún er hins vegar ekki einföld. Líklega yrði þá þvinguð fram atkvæðagreiðsla um annað hvort eða bæði ákvæðið um auðlindir í þjóðareign og breytingarákvæði stjórnarskrárinnar. Allar aðrar breytingartillögur yrðu dregnar til baka og ef Margrét Tryggvadóttir drægi ekki sína breytingartillögu um atkvæðagreiðslu um stjórnarskrárfrumvarpið í heild til baka, yrði hún væntanlega felld með þverpólitískum hætti. Það flækir líka málið að beita þyrfti 71. grein þingskapa að minnsta kosti tvisvar, þar sem stjórnarskrárfrumvarpið er nú í annarri umræðu og þriðja umræða eftir. Þá þyrfti að tryggja að 32 þingmenn væru í þingsal við atkvæðagreiðsluna, svo hún geti farið fram, en Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn gætu hugsanlega komið í veg fyrir það með því að ganga úr þingsal. Ef þetta verður niðurstaðan myndi kjörtímabili ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur ljúka með hvelli og öll önnur mál sem eftir eru á málaskrá Alþingis sætu eftir ókláruð, þegar þingmenn gengju svo til kosningabaráttu og skelltu hurð Alþingis á eftir sér.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Fleiri fréttir Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Sjá meira