Væri hræðilegt að segja vitlausa lottótölu í beinni 13. apríl 2012 20:00 Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir er nýja Lottóþulan og verður því fastur gestur á skjám landsmanna frá og með næstu viku. Mynd/Vilhelm „
Það má segja að mig dreymir martraðir um Lottó á nóttunni og ég viðurkenni að ég er smá stressuð fyrir þessu nýja hlutverki," segir Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir sem hefur verið ráðin í starf lottóþulu. Sigríður Hrönn er ferðamálafræðingur að mennt og í fullri vinnu sem annar eigandi Minicards á Íslandi. Hún hefur starfað sem fyrirsæta í hjáverkum mörg ár, meðal annars á Indlandi og á Spáni. Þegar hún var kölluð í prufur fyrir nokkrum vikum síðan var hún fyrst efins enda hafði hún aldrei spáð neitt sérstaklega í starfi á borð við þetta. „Það var samt aðallega vegna þess að ég var stressuð að vera í beinni útsendingu fyrir framan allt Ísland. Ég er vön að fá að taka minn tíma fyrir framan myndavélina og það sé ekki talið niður í beina útsendingu," segir Sigríður sem er þó spennt fyrir nýja starfinu. Sigríður tekur við af Elvu Dögg Melsteð sem hætti í Lottó um áramótin en ráðningarferlið fyrir nýja Lottó stúlku hefur staðið í þó nokkurn tíma. „Þeir voru búnir að prufa margar stelpur en sáu mig í sjónvarpsauglýsingu og höfðu samband," segir Sigríður sem fer í læri í næstu viku hjá Katrínu Brynju Hermannsdóttur sem hefur verið lottóþula í nokkur ár. Sigríður gerir sér grein fyrir að Lottó er fastur liður í lífi marga Íslendinga og því ákveðin pressa á henni að standa sig vel. „Ég ætla að gera mitt besta og reyna að klúðra ekki neinu. Það væri hrikalegt að segja til dæmis vitlausa tölu í beinni útsendingu," segir Sigríður hlæjandi sem þreytir frumraun sína í beinni útsendingu í Lottó-drættinum laugardaginn 21 apríl. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Fleiri fréttir „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Sjá meira