Hættu tökum vegna hávaða í flugvél 14. apríl 2012 10:30 Klezmer-tónlist Heiða Björg Jóhannsdóttir er söngkona hljómsveitarinnar Klezmer Kaos. Sveitin spilar tónlist sem á rætur að rekja til Austur-Evrópu.
Hljómsveitin Klezmer Kaos heldur útgáfutónleika á Nasa þann 28. apríl næstkomandi í tilefni af útgáfu fyrstu plötu sveitarinnar, Froggy, er kom út í byrjun árs. Söngkona sveitarinnar er íslensk en aðrir meðlimir hennar eru franskir að uppruna. Klezmer Kaos er skipuð þeim Heiðu Björgu Jóhannsdóttur, Charles Rappoport, Pierre Polveche, Sylvain Plommet og Laurent Lacoult og hefur sveitin komið víða fram í Evrópu sem og samið tónlist fyrir franskar heimildarmyndir. Hljómsveitin spilar blöndu af hefðbundinni klezmer-tónlist og jiddískum og íslenskum þjóðlagaarfi. Heiða Björg, sem hefur verið búsett í París frá árinu 2004, segir klezmer-tónlist eiga uppruna sinn að rekja til Austur-Evrópu og eiga margt skylt með sígaunatónlist. „Ég kynntist klezmer-tónlist fyrst á Íslandi, þó það kunni að þykja furðulegt, þegar ég stundaði nám á klarinett í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Stuttu síðar stofnaði ég mína fyrstu hljómsveit sem var þó aðeins til í nokkra mánuði,“ útskýrir Heiða. Klezmer Kaos var stofnuð í byrjun ársins 2007 og var fyrsta plata sveitarinnar tekin upp í Tankinum á Flateyri. „Við byrjuðum á því að taka upp í París en skilyrðin þar voru þannig að ef flugvél flaug fram hjá tökuverinu urðum við að hætta að spila. Við ákváðum því að hætta og byrja aftur frá grunni í Tankinum.“ Miðasala er hafin á Midi.is og er miðaverð 3.000 krónur.- sm
Mest lesið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Fleiri fréttir „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Sjá meira