Lærir sverðatækni fyrir Norsku Óperuna 18. apríl 2012 20:00 Leikarinn Ívar Örn Sverrisson tekur þátt í uppfærslu Norsku Óperunnar á Aidu þar sem hann blandar sverðatækni inn í dansatriðin. „
Það er gaman hvað norska listasamfélagið hefur tekið mér vel og ég er óendanlega þakklátur fyrir þau tækifæri sem ég fæ," segir leikarinn Ívar Örn Sverrisson sem hefur fengið hlutverk í óperunni Aidu hjá Norsku Óperunni. Ívar Örn hefur verið búsettur í Ósló ásamt fjölskyldu sinni í rúmt ár og og datt í lukkupottinn þegar hann var ráðinn til starfa hjá Norsku Óperunni fyrir uppsetningu á Aidu. „Það er ekkert sjálfsagt að fá tækifæri hérna. Ég er dansari í Aidu og tek meðal annars þátt í stóru bardagaatriði með samúræjasverðum," segir Ívar, en uppsetningin er mjög stór og þegar mest lætur eru um 100 manns á sviðinu í einu. „Við strákarnir sem leikum í bardagaatriðunum höfum fengið sérstaka þjálfun í sverðatækni sem nefnist Battodo Fudokan og er blandað inn í dansinn á skemmtilegan hátt." Ívar Örn er á fullu við æfingar þessa dagana en óperan er frumsýnd á laugardaginn og uppselt langt fram í tímann. Ívari Erni líkar lífið vel í Noregi en honum hefur gengið vel að fóta sig í norska leikhúsheiminum. Þegar hann var nýkominn út fékk Ívar til dæmis hlutverk með leikhópnum Grusomhetens Teater. „Maður fer í þær prufur sem eru í boði og reynir svo að bíða bara rólegur eftir næsta verkefni." Ívar hefur einnig verið að fylgjast með viðtökum á stuttmynd sem hann lék í fyrir nokkru síðan. Myndin var tekin upp í Skotlandi og nefnist Tumbult. „Myndinni er leikstýrt af Johnny Barrington og var frumsýnd á Sundance hátíðinni í byrjun árs og ferðast nú um heiminn á hinar ýmsu hátíðir." -áp
Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira