Tólf hjúkrunarfræðinemar til Kenýa 30. apríl 2012 12:00 Þær Steinunn, Lilja, Jóna, Sigrún, Elísabet, Auður, Dagrún, Auðna, Melkorka, Guðrún, Björk og Lóa ætla að dvelja í fátækrahverfunum við Nairobi í mánuð og vinna sjálfboðastarf. „
Við förum inn í fátækustu hverfin rétt fyrir utan höfuðborg Kenýa, Nairobi, og störfum með fólkinu þar," segir Steinunn Helga Sigurðardóttir hjúkrunarfræðinemi. Tólf bekkjasystur af þriðja ári í hjúkrunarfræði í HÍ halda til Afríku til að vinna sjálfboðastarf. Stelpurnar halda út þann 12. maí næstkomandi og verða í tæpan mánuð. Þær fara utan á eigin vegum en vinna fyrir samtökin The Kenya Project og Advance Africa. „Við ákváðum að skipta okkur í tvo hópa en verðum samt allar á svipuðu svæði og eigum eflaust eftir að hittast mikið," segir Steinunn. Hugmyndina fengu stelpurnar eftir að hópur hjúkrunarfræðinema fór út í sams konar verkefni í fyrra. „Þetta hljómaði svo spennandi hjá þeim og þær sögðust hafa lært svo mikið af þessu að við ákváðum að fara líka. Þar sem við erum að fara á sama stað og þær fóru á í fyrra vitum við líka nokkurn veginn út í hvað við erum að fara – höldum við," bætir hún við og hlær. Meðal þess sem stelpurnar koma til með að gera verður að vinna á fæðingardeildum, sinna almennum hjúkrunarstörfum og heimsækja munaðarleysingjahæli og miðstöð þar sem HIV-smitaðar konur geta leitað sér leiðsagnar og stuðnings. Stelpurnar sjá algjörlega um að fjármagna ferðina sjálfar. „Við leituðum að styrkjum en það gekk mjög illa svo við erum bara búnar að vera duglegar að selja klósettpappír. Auk þess héldum við bingó um daginn og það gekk rosalega vel, svo það munar um það," segir Steinunn og bætir við að ýmis fyrirtæki hafa veitt þeim stuðning með gjöfum fyrir þær að taka með sér út. „Smokkur.is gaf okkur til dæmis 1.200 smokka, Rekstrarvörur og Birgðastöð Landspítalans gáfu okkur alls kyns hjúkrunarvörur og A4 gaf okkur stílabækur og ritföng," segir hún. Stelpurnar klára síðasta prófið rúmum sólarhring áður en þær leggja af stað til Kenýa og þurftu því að ganga frá flestu áður en þær lögðust í próflesturinn. „Allar sprautur, tryggingar og slíkt er komið á hreint og við nokkurn veginn tilbúnar að stíga um borð í flugvélina," segir Steinunn spennt. Áhugasamir geta styrkt stúlkurnar með því leggja inn á reikning: 0331-13-301037. Kennitalan er 080386-2499. tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira