Hressir hæfileikamenn 2. júní 2012 14:00 EDINBURGH, UNITED KINGDOM - OCTOBER 27: Yann Tiersen performs on stage at The Picture House on October 27, 2010 in Edinburgh, Scotland. (Photo by Marc Marnie/Redferns) Yann Tiersen tónlistarmaður
Yann Tiersen Listahátíð - Harpa Norðurljós, 31. maí Það er greinilegt að Frakkinn Yann Tiersen á sér nokkuð marga aðdáendur á Íslandi. Það var löngu uppselt á tónleikana hans í Norðurljósasal Hörpu á fimmtudagskvöldið og hann fékk mjög góðar viðtökur í stöppuðum salnum. Tiersen er þekktastur fyrir tónlistina í kvikmyndinni Amélie, en í henni eru píanóið og harmonikkan mest áberandi. Á tónleikunum í Hörpu flutti Tiersen aðallega lög af tveimur síðustu plötunum sínum, Dust Lane frá 2010 og Skyline sem kom út í fyrra. Tónlistin á þeim er meira í indípoppgeiranum. Hún einkennist meðal annars af spilagleði, flæðandi píanóleik og stigmögnun. Sum laganna sveiflast á milli kraftmikilla og lágstemmdari kafla. Með Tiersen kom fimm manna hljómsveit. Þeir félagar eru nýkomnir úr tónleikaferð um Bandaríkin og Kanada og höfðu greinilega spilað sig vel saman. Þetta eru allt fínir hljóðfæraleikarar, en Tiersen sjálfur, sem spilar á fjölmörg hljóðfæri, stal senunni algerlega um miðbik tónleikanna þegar hann tók einleik á fiðluna sína við gríðarleg fagnaðarlæti. Fiðlan var líka áberandi í öflugasta laginu af Skyline, The Gutter. Undir lok tónleikanna komu strengjastelpurnar úr Amiinu og spiluðu með í nokkrum lögum. Það var mjög góð stemning á þessum tónleikum. Tiersen og félagar voru léttir í lund og gleðin smitaði salinn. Þegar þeir yfirgáfu sviðið eftir tæplega einn og hálfan tíma, brutust út mikil fagnaðarlæti og þeir tóku nokkur lög til viðbótar. Á heildina litið voru þetta ágætir tónleikar með fjölhæfum tónlistarmanni.Trausti Júlíusson Niðurstaða: Yann Tiersen og félagar náðu upp mikilli stemningu í Norðurljósasalnum á fimmtudagskvöldið.
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Megas er látinn Lífið Fleiri fréttir Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Sjá meira