Justin Timberlake hefur verið önnum kafinn við að skipuleggja brúðkaup sitt og leikkonunnar Jessicu Biel. Brúðkaupið mun að öllum líkindum fara fram í október á Palazzo Margherita hótelinu á Ítalíu, sem er í eigu leikstjórans Francis Ford Coppola.
„Justin vill að brúðkaupið fari fram á Ítalíu því þau eru bæði afskaplega hrifin af landinu. Þau fara þangað gjarnan í frí og eiga mikið af góðum minningum þaðan,“ var haft eftir heimildarmanni. Timberlake er einnig sagður sjá að mestu um allt skipulag í kringum stóra daginn og hefur gaman af.
