Útlitið skiptir nánast jafn miklu máli og maturinn 30. júlí 2012 11:00 Leifur Welding er einn vinsælasti innanhúshönnuður landsins í dag. Hann hefur hannað útlit yfir fimmtán veitingastaða. „
Ég lærði húsasmíði á sínum tíma og hef í raun aldrei titlað mig hönnuð – ég bara framkvæmi," segir Leifur Welding sem er í dag einn vinsælasti innanhúshönnuður landsins. Leifur hefur komið að útlitshönnun um tuttugu veitingastaða á landinu og verður ekki uppiskroppa með verkefni í bráð. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hönnun og með námi vann ég hjá fyrirtæki sem hét A. Karlsson. Ég vann í húsgagnadeildinni sem seldi aðallega til veitingastaða og hótela. Viðskiptavinirnir spurðu mig ráða varðandi hitt og þetta og svo vatt þetta upp á sig og allt í einu var ég farinn að hanna heilu kaffihúsin," rifjar Leifur upp. Hann hóf síðar nám við Háskólann á Bifröst og á sama tíma stofnaði hann hönnunarverslunina Saltfélagið ásamt öðrum. Hann seldi hlut sinn í versluninni árið 2007 og hefur síðan þá helgað sig hönnunarstarfinu. Inntur eftir því hvað þurfi til að veitingastaður virki segir Leifur staðina standa og falla með hugmyndinni á bak við þá. „Ég sest niður með eigendunum og saman vinnum við að grunnhugmynd, svo er hannað utan um hana. Maður hannar í raun utan um reksturinn," útskýrir Leifur og bætir við að umhverfi veitingastaða skipti gesti nú næstum jafn miklu máli og maturinn sjálfur. Að hans sögn hefur mikil breyting orðið á veitingarekstri hér á landi síðustu sjö árin og leggi fólk mikinn metnað í innviði staðanna. „Samkeppnin er orðin svo mikil og þess vegna verða menn að hafa staðina einstaka, bæði í mat og umhverfi." Þegar Leifur er að lokum spurður að því hvort hann verði aldrei uppiskroppa með hugmyndir er hann fljótur til svars: „Ég hef í það minnsta ekki orðið uppiskroppa ennþá," segir hann hlæjandi. „Ég lifi og hrærist í þessu og þetta er það skemmtilegasta sem ég geri. Ég reyni líka að ferðast mikið til að fá innblástur og til að safna upplifunum." sara@frettabladid.is
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira